Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Það skal vera örstutt athugasemd vegna ummæla hv. þm. Friðriks Sophussonar.
Fyrirspurnin snýst um ummæli mín þess efnis hvort nýjasta skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar um efnahagsmál á Íslandi væri einhvers virði eða ekki. Ég hef sagt að hún væri einskis virði og það er rétt. Hún lýsir á engan máta því ástandi sem skapast hefur hér á landi undanfarna mánuði og verður að taka á á nýjan hátt og það sakar ekki fyrir þá stofnun að fá að heyra það.