Efnahagsaðgerðir
Mánudaginn 19. desember 1988

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Aðeins örfá orð vegna þess sem kom fram hjá hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur. Hv. þm. nefndi að ekki væri komið svar við þeirri fyrirspurn sem hún ásamt nokkrum fleirum lagði fyrir mig um stöðu tíu best settu og tíu verst settu fyrirtækjanna. Ég vil geta þess að drög að svari Þjóðhagsstofnunar barst á mitt borð fyrir örfáum dögum en ég var ekki ánægður með það þar sem það var allt byggt á reikningum fyrir árið 1987 sem sýna alls ekki réttu myndina því það hefur orðið svo mikil kollsteypa á árinu 1988. Því endursendi ég það og óskaði eftir því að gert yrði allt sem hægt er til að hafa þarna upplýsingar um árið 1988. Vandinn er sá að fjölmörg þessara fyrirtækja eru ekki með reikninga fyrir árið 1988 tilbúna. Það er sem sagt verið að reyna að gera það besta úr því sem hægt er einnig fyrir árið 1988. Ég vil taka mjög undir það sem hv. þm. sagði að menn þurfi að gera sér grein fyrir rótum vandans og það er einmitt það sem ég tel að við séum að gera. Ég tel að þessar rætur séu stöðugt að koma í ljós, m.a. í miklum fjármagnskostnaði.
    Út af því sem hv. þm. Kristinn Pétursson sagði áðan er rétt að Seðlabankinn á að ákveða gengið. Seðlabankinn hefur ekki gert neina tillögu um gengisbreytingu. Hann hefur þvert á móti sent okkur ítarlegt yfirlit um breytingu á raungengi sem sýnir að það hefur verið lækkandi. Ég met stöðu Seðlabankans svo að hann telji ekki þörf á gengisbreytingu.
    Ég ætla ekki að svara ýmsu því sem kom fram hjá hv. þm. Friðriki Sophussyni, sem ekki er hér staddur. Þó vil ég segja að okkur er fyllilega ljóst að samkeppnisiðnaðurinn er skilinn eftir í þessum aðgerðum en þetta eru sértækar aðgerðir, eins og aðgerðir sjálfstæðismanna voru einnig að mestu leyti fyrir utan þær gengisbreytingar sem eru í báðum, vegna þess að þessar greinar, og þá sérstaklega frystingin, hafa verið í langsamlega erfiðastri stöðu að áliti allra sem það hafa skoðað. Það er því verið að reyna að jafna þau mörk en hv. þm. er ekki hér og ég ætla ekki að fara að ræða það nánar.