Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Í fyrirspurnatíma sl. fimmtudag tjáði ég forseta að ég væri með svör við tveimur fsp. sem lágu þar fyrir til mín. Önnur var afgreidd. Fyrirspyrjendur voru ekki viðstaddir til að hreyfa hinu málinu. Ég hafði gert ráð fyrir því að þeirri fsp. sem hér er um að ræða yrði svarað nk. fimmtudag, þá ekki gert mér grein fyrir því að það kann að vera að það verði ekki fyrirspurnatími þá, og ég bið hv. fyrirspyrjanda afsökunar á því. Hins vegar er svar mitt raunar mjög stutt og laggott. Ég tel ekki blasa við þjóðargjaldþrot.