Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Mér þykir rétt, ekki síst þar sem hér hafa komið fram ýmsar athugasemdir og orðið nokkur umræða um efnahagsstöðuna almennt, að fara um það nokkrum orðum. Ég skal þó forðast að flytja það langa ræðu að ég fái ámæli fyrir frá stjórnarandstöðunni.
Hv. 1. þm. Suðurl. sagði menn hafa búist við víðtækum efnahagsráðstöfunum um áramót. Ég veit ekki á hverju það er byggt. Ég hef hvað eftir annað sagt í umræðu hér á hinu háa Alþingi að þeim ráðstöfunum sem gripið var til við stjórnarmyndun 28. sept. var ætlað að veita svigrúm fram í febrúar og áformað að vinna á þeim tíma ötullega að því að skapa betri grundvöll fyrir efnahagsaðgerðir sem gætu orðið varanlegri og, svo að ég noti orð, ég held það hafi verið hv. síðasta ræðumanns hér um daginn, sem sagt reyna að grafast fyrir um rætur vandans og gera sér grein fyrir því t.d. hvers vegna aðgerðir, á sl. ári m.a., virtust flestar renna mjög fljótlega út í sandinn. A.m.k. var staða atvinnuveganna eftir þær gengisfellingar sem gerðar voru í febrúar og maí mjög fljótlega svipuð ef ekki verri en hún hafði verið áður. Og ég ítreka enn einu sinni það, sem ég held að vísu að sé ekki misskilningur um hér á hinu háa Alþingi, að sú leiðrétting á gengi sem gerð var um áramótin var alls ekki nema óbeint liður í efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Hún var gerð til þess einmitt að skapa þetta svigrúm sem til var ætlast í september. Hún er miðuð við að leiðrétta það misgengi sem orðið var við dollarann sem að mati Seðlabankans var orðið 4,3% á nýársdag. Að vísu breyttist dollarinn enn nokkuð á öðrum í nýári og gengisfellingin sem var gerð er því í raun nær 5% miðað við þá stöðu sem þá var orðin.
Okkur er að sjálfsögðu ljóst að þessi gengisfelling hefur hækkunaráhrif á verðlag. Reynt verður að draga úr því og hafa verið gerðar ráðstafanir til þess, m.a. með því að færa til sömu dagsetningar greiðslu söluskatts og innheimtu greiðslukorta sem kaupmenn hafa talið vera mjög íþyngjandi, eins og flestir vita, eins og það var áður. Sömuleiðis var ákveðið að veita heimild til að nýta greiðslufrest sem innflytjendur geta fengið erlendis. Ég er ekki að segja að þetta vegi upp á móti þeim hækkunaráhrifum sem gengisfellingin hefur. Það er nokkuð athyglisvert að gengisfellingin er annars vegar gagnrýnd fyrir það að vera of lítil og hins vegar gagnrýnd fyrir það að hafa verðlagsáhrif. Nú veit ég að öllum er ljóst að hjá þessu verður ekki komist. Því meiri sem gengisfellingin er því meiri áhrif hefur hún á verðlag. En ég ætla ekki að eyða fleiri orðum að þessari gengisfellingu. Í mínum huga var hún algjört aukaatriði í þeim efnahagsráðstöfunum sem gera þarf.
Það er rétt sem komið hefur fram hjá hv. ræðumönnum að ég afhenti viðbótargögn nú á síðustu dögum, hef afhent formönnum eða leiðtogum stjórnarandstöðuflokkanna þessi gögn. Sömuleiðis hef ég átt viðræður við forseta ASÍ og afhent honum gögnin, ég hef átt viðræður við forustumenn
vinnuveitenda, við áttum ítarlegan fund í morgun með forustumönnum í sjávarútvegi, og þannig get ég áfram talið og mun áfram ræða við þessa aðila, að sjálfsögðu, með það í huga að víðtækt samráð geti orðið um þessi mál, t.d. í næstu viku. Af því að hér var spurt áðan, ef ég man rétt, hvernig ég hugsaði mér það samráð svara ég þeirri spurningu þannig að ég vil ákveða það að höfðu samráði við þá aðila sem ég hef leitað til og hef ekki sett þar ákveðna formúlu fram á þessu stigi. Þetta er liður í þeirri viðleitni að vinna að þessum málum mjög opið og mér er ljóst að þetta hefur þegar komist til fjölmiðla. Ég hef út af fyrir sig enga athugasemd við það að gera, það vill gerast fljótlega þegar margir vita.
Ég ætla ekki að ræða þau nýjustu gögn ítarlega en geta þó aðeins um eitt atriði þeirra sem varðar það sem mjög hefur borið hér á góma, þ.e. áhrif gengisbreytingar til hagsbóta fyrir útflutningsgreinarnar. Ég upplýsti hér á hinu háa Alþingi fyrir jólin að ég hefði beðið um athugun á því hvaða áhrif mismunandi gengisfelling hefði til lengri tíma litið fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. Því er ekki að leyna að ég gerði það vegna þess að mér leikur nokkur forvitni á að vita betur hvernig á því stendur að gengisfellingar á síðustu mánuðum hafa borið afar lítinn árangur, hafa runnið afar fljótt út í sandinn. Þjóðhagsstofnun kaus að vinna þetta þannig að leggja til grundvallar þau 30 fyrirtæki sem sérstaklega og mjög ítarlega hafa verið skoðuð og gera það sameiginlega fyrir þau fyrirtæki fremur en að skoða hvert einstakt fyrirtæki því aðstaðan hjá einstökum fyrirtækjum er svo gífurlega breytileg að þeir töldu það nánast óvinnandi verk. Þetta var síðan útfært til miklu fleiri sjávarútvegsfyrirtækja með því að framreikna stöðu þeirra til dagsins í dag á grundvelli þeirrar þróunar sem kom fram hjá þessum 30 fyrirtækjum sem sérstaklega voru athuguð.
Nú er að sjálfsögðu ljóst að til þess að unnt sé að gera slíka athugun þarf að gefa sér mjög margar forsendur. T.d. þarf að gefa sér forsendur um aflabrögð og þær forsendur eru gefnar þar að afli dragist saman á árinu 1989 um 7%, á árinu 1990 um 3% en afli aukist síðan á árinu 1991 og 1992 um 2% fyrra árið, 5% síðara árið. Það þarf einnig að gefa sér forsendur um
meðalverðlag sjávarafurða á erlendum mörkuðum. Talið er að sjávarafurðir hækki um 2% á ári á erlendum mörkuðum og er reyndar þá aðeins tekin nokkurn veginn sú verðbólguspá sem liggur fyrir frá alþjóðlegum stofnunum. Það þarf einnig að gefa sér forsendur um raunvexti. Þeir eru settir í 7% fyrri tvö árin en 6% seinni tvö árin. Einnig þarf að gefa sér forsendur um lengd lána og þær forsendur eru gefnar að afborgunartími lána sé 6--8 ár, dálítið breytilegur eftir því um hvaða greinar sjávarútvegsins er að ræða. Í þessu er gert ráð fyrir því að launahækkun verði á árinu eins og Þjóðhagsstofnun hefur gert ráð fyrir, 5%, og 5% fiskverðshækkun, en eftir árið 1989 er ekki gert ráð fyrir að neinar slíkar breytingar verði né gengisfelling. Þetta er að sjálfsögðu stílfært dæmi en
það er ekki kostur á að reikna slíkt út nema með einhverju slíku móti. Í fáum orðum sagt, það sem kemur mjög athyglisvert út úr þessum dæmum er að það er nánast sama hver gengisfellingin verður, vandi sjávarútvegsins verður ekki leystur á nokkrum mánuðum. Ef gengisfelling væri t.d. ákveðin 10% væri fjárþörf í sjávarútvegi án nokkurrar nýrrar fjárfestingar 8--9% fram á næsta ár til viðbótar við tekjur, þ.e. 8--9% þörf fyrir nýtt fé, 8--9% af veltuþörf fyrir nýtt fé fram á mitt næsta ár, þ.e. skuldir fyrirtækjanna mundu halda áfram að vaxa. Jafnvel með 20% gengisfellingu, sem ég hef ekki heyrt menn minnast á, væri þörf á viðbótarfjármagni upp á 4% og jafnvægi mundi ekki nást samkvæmt þessum, ég endurtek, stílfærðu dæmum t.d. miðað við 20% gengisfellingu fyrr en um mitt árið 1991. Og ef bætt er við fjárfestingu lengist þessi tími vitanlega töluvert mikið. Ég lét því einnig athuga og fékk útkomuna í gær hvaða áhrif það hefði ef unnt væri að lengja lánin verulega, t.d. tvöfalda lánin, og það kemur að sjálfsögðu í ljós að þá lagast þessi mynd afar mikið, þá minnkar fjárþörf fyrirtækjanna u.þ.b. um 3% af veltu, þ.e. ef lánin eru tvöfölduð. Menn geta sagt, það er ekki raunhæft að tala um svo löng lán, sem sagt 12--16%. Ég segi, vissulega kann það að vera raunhæft og kann að vera nauðsynlegt. Ég lét líka athuga hvaða breytingum það ylli ef raunvextir lækkuðu í 4% og að sjálfsögðu breytir það einnig fjárþörfinni um u.þ.b. einn til tvo af hundraði á ári, en að öðru leyti verða breytingarnar jafnvel meiri, þ.e. reksturinn lagast fyrr. Ef þetta hvort tveggja næðist væri gífurlega dregið úr nýrri fjárþörf sjávarútvegsins og það væri svo sannarlega markmið að setja sér. Ég vil því halda því fram að öll þessi upplýsingasöfnun sé þegar að leiða til mjög haldgóðra upplýsinga sem við höfum nú og hljóta að verða lagðar til grundvallar í þeim aðgerðum sem óhjákvæmilegt er að grípa til.
Ég hef einnig dreift upplýsingum sem ég sé að jafnframt hafa einnig að sumu leyti birst. Ég veit ekki hvað hefur birst mikið af því sem ég sagði áðan, mér finnst afar eðlilegt að menn skoði þau mál opinskátt, en ég hef dreift upplýsingum um ýmsar ráðstafanir sem alveg sérstaklega hafa verið unnar á vegum sjútvrh. og miða vitanlega að því að draga úr þörf fyrir aðrar almennar aðgerðir eins og gengisfellingu eða niðurtalningu í þágu sjávarútvegsins.
Það er mjög athyglisvert að í því mati sem Þjóðhagsstofnun gefur nú á stöðu sjávarútvegsins hefur staða útgerðar versnað mjög. Samkvæmt alveg nýlegu mati sem ég var að fá á stöðu eftir þá gengisbreytingu sem nú er orðin er staðan miðað við nokkurn veginn --- það er verið að skoða þetta nokkuð nánar, vil ég taka fram --- þá telur Þjóðhagsstofnun að botnfiskveiðar, veiðar og vinnsla séu enn þá rekin með u.þ.b. 5% halla en veiðarnar sjálfar með 9% halla og vinnslan í heild sinni sé í kringum núllið eins og að var stefnt með aðgerðunum í september en frystingin sé með tvo og hálfan í halla en saltfiskur með fjóra og hálfan í plús. Það er ekki síst þessi mjög slæma staða veiðanna sem veldur
áhyggjum og að sjálfsögðu er mönnum ljóst að gengisfelling lagar ekki fyrir veiðarnar heldur þvert á móti gerir ástandið þar verra. Þess vegna hefur sjútvrh. hafið mjög umfangsmikla vinnu að því hvort ekki megi fækka fiskiskipum og færa þannig fiskveiðikvótann saman á færri skip. Við ræddum þetta við sjávarútvegsmenn í dag og ég held að allir séu sammála um að þetta er afar mikilvæg aðgerð. Hún skiptir hins vegar ekki sköpum á nokkrum vikum, þetta er langtímaaðgerð. Ég er hins vegar ekki í nokkrum vafa um að einhver aðgerð í þessa veru er óhjákvæmileg ef við ætlum að ná viðunandi rekstrarstöðu fyrir þennan stóra flota og um leið þó möguleika til þess að laga fyrir sjávarútveginn í heild, þ.e. án þess að laga fyrir frystinguna en spilla fyrir útgerð. Við þurfum að fá þar meira jafnvægi á milli. Það er einnig í athugun svipað fyrir vinnsluna og hafin vinna við það, sem sagt hagræðingarátak í þágu vinnslunnar.
Hér var sagt áðan að í þeim gögnum sem ég hef dreift sé ekki að finna orð um hvað gera eigi fyrir láglaunafólkið. Það er að vísu rétt að þar er ein setning sem í segir nokkurn veginn að grípa verði til hliðarráðstafana vegna láglaunafólks ef kemur til almennra aðgerða eins og hér er verið að tala um. Þessari ríkisstjórn er fullkomlega ljóst að þær aðgerðir þurfa að vera víðtækar. Þær aðgerðir eru hins vegar miklu betur kunnar en ýmsar þessar sértæku aðgerðir sem verið er að vinna fyrir atvinnuvegina. Við höfum hvað eftir annað gripið til aðgerða, og þá á ég við margar ríkisstjórnir, til að
hækka barnabætur, hækka tekjutryggingu og hækka tryggingariðgjöld svo að eitthvað sé nefnt. Það hefur einnig verið rætt um leiðir til þess, reyndar framkvæmt að litlu leyti enn þá af þessari ríkisstjórn, að auka jafnvel niðurgreiðslur á matvæli til að lækka matvælakostnað og ég tel það vera þátt sem þarf að athuga mjög vandlega þegar til aðgerða kemur. Ég vil því fullvissa hv. þingmenn um að í þeim viðræðum sem við eigum munu þessir liðir allir verða á borðinu þó að ég hafi ekki talið nauðsynlegt að telja þá upp á þessari stundu sem væri þó auðvelt.
Hér hefur verið rætt töluvert um Atvinnutryggingarsjóðinn. Ég hygg að sjá megi af þeim upplýsingum sem ég gaf áðan um áhrif af lengingu lána og lækkun fjármagnskostnaðar að starf þess sjóðs er afar mikilvægt. Þar er einmitt verið að lengja lánin upp í 10 ár. Ég hefði að vísu kosið að farið hefði verið enn þá lengra þegar ég sé hvað skuldastaða fyrirtækjanna er ákaflega erfið, en líklega þykir nokkuð mikið í lagt á þessu stigi að lengja lánin þó upp í 10 ár.
Sjóðurinn hefur fengið 175--180 umsóknir. Sumar þessara umsókna eru hins vegar það illa úr garði gerðar og svo mikið vantar í margar þeirra að afar erfitt er að taka afstöðu til þeirra. Sjóðurinn hefur nú afgreitt 31 umsókn, þar af er 21 jákvæð en 10 eru neikvæðar. Sjóðurinn er núna með 33 umsóknir sem samstarfsnefndin hefur ákveðið og sjóðsstjórnin er að fjalla um þær í dag. Ég skal ekki segja hver
niðurstaðan verður en ekki er ólíklegt að hlutfallið sé eitthvað svipað því sem ég nefndi áðan.
Það er hárrétt að fjármagn hefur ekki verið afgreitt nema til fjögurra sjóða og það stafar fyrst og fremst af tvennu. Í fyrsta lagi tekur tíma að útbúa gögnin, ganga frá veðum og öllu slíku, eins og ég hygg að flestir viti, og eru það ekki tafir af hálfu sjóðsstjórnarinnar, og svo af hinu að ég vil leyfa mér að segja að þyrlað hefur verið upp ótrúlegu moldryki í kringum þennan sjóð og starfsemi hans tortryggð. Því hafa margir sem hafa fengið samþykki átt í vissum erfiðleikum að fá sína lánardrottna til þess að taka við þeim skuldabréfum sem hér er um að ræða. Að sjálfsögðu hefur staða sjóðsins verið skoðuð og ég viðurkenni að það þarf að skýra hana betur.
Ég hygg að stöðu sjóðsins verði best lýst með því að líkja sjóðnum við aðrar ríkisstofnanir. Það stendur skjalfest að ríkissjóður beri ábyrgð á öllum gerðum viðskiptabankanna, Fiskveiðasjóðs, Stofnlánadeildar landbúnaðarins o.s.frv. Við áttum ítarlegan fund með forstöðumönnum Seðlabanka og allra viðskiptabanka ríkisins um þetta mál í morgun og ég hygg að niðurstaðan af þeim fundi hafi verið sú að í raun væri staða sjóðsins afar svipuð og staða þessara aðila sem ég hef nefnt. Það er ekki dregið í efa að ábyrgð ríkisins stendur á bak við eignir sjóðsins. Sömuleiðis vil ég benda mönnum á að í því greiðsluflæði sem unnið hefur verið fyrir sjóðinn, og sem ég hygg að ýmsir hafi séð, er gert ráð fyrir því að sjóðurinn verði að taka veruleg lán á þessu 10 ára tímabili, sem skuldabréfin sem hann tekur við frá fyrirtækjunum ná yfir, til að geta staðið við greiðslur. Þau lán verða ekki tekin nema á lánsfjáráætlun og fyrir milligöngu ríkissjóðs þannig að þegar þetta mál var rætt nánar hygg ég að allir hafi viðurkennt að þarna væri vitanlega óbein og mjög víðtæk ríkisábyrgð að baki eins og er hjá bönkum og mörgum sjóðum. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ekki viljað taka það skref að ríkisábyrgð væri á hverju einstöku bréfi frekar en hverri einstakri slíkri skuldbindingu hjá bönkum eða öðrum sjóðum.
Um leið og ég tek undir það að stöðu sjóðsins þarf að skýra betur tel ég að hún hafi verið að skýrast núna á síðustu dögum en ríkisstjórnin mun leggja áherslu á að hún skýrist enn betur og þá vona ég að losni um móttöku á þessum bréfum. Ríkisstjórnin hefur einnig rætt um það við Seðlabankann að hann greiði fyrir því að viðskiptabankarnir geti tekið við þessum bréfum og ekki þurfi að skerða þeirra lausafjárstöðu o.s.frv. Ég vek athygli á því að í fyrri skuldbreytingu, t.d. árið 1982 og gerð var í gegnum viðskiptabankana, samþykkti Seðlabankinn að taka við vissum hluta þeirra bréfa. Ég tel ekki óeðlilegt að svo verði enn þó að ég taki skýrt fram að engin endanleg ákvörðun er um þetta tekin. Þetta mál er þannig til ítarlegrar meðferðar og ég leyfi mér að fullyrða að það muni skýrast mjög á allra næstu dögum.
Það má skipta afgreiðslum sjóðsins í tvennt, eins og kemur fram í því sem ég ég las áðan, þ.e. annars vegar fyrirtæki sem fá þær afgreiðslur og hins vegar
fyrirtæki sem ekki fullnægja ákvæðum laga og reglugerða um rekstrarhæfni. Að sjálfsögðu getur ríkisstjórnin ekki haft nema mjög takmörkuð afskipti af einstökum slíkum fyrirtækjum og menn geta kannski sagt: Þau verða bara gjaldþrota. En það er nokkuð alvarlegt mál ef fyrirtæki sem ber uppi atvinnulíf á einstökum stað er gert gjaldþrota. Það er ekki síst alvarlegt mál ef skip eru t.d. seld á brott frá slíkum stað og eignirnar sitja eftir án þess að hafa afla. Ég held að ég megi fullyrða að ýmsum sjóðum og bönkum er þetta mjög vel ljóst og því hafa þeir hafið mjög ítarlega athugun á eigin vegum á þessu máli því að ef banki á veð í frystihúsi sem missir togarann sinn og fær engan afla er það veð heldur lítils virði. Ég tel að sá hlutafjársjóður, sem að tillögu stjórnarandstöðunnar er kominn inn í þetta mál, geti að vissu leyti
orðið til verulegrar aðstoðar í þessu sambandi og til þess að bankar geti breytt skuldum í hlutafé með því að kaupa þar aðildarbréf, eins og lagt hefur verið til af stjórnarandstöðu. Alla starfsemi þess sjóðs þarf vitanlega að móta miklu betur en við teljum að þetta sé mikilvæg leið í þessu sambandi.
Menn hafa talað mikið um gengisfellingu o.s.frv., sem eðlilegt er, og réttilega hefur verið sagt að gengisfelling þýði að fluttar eru tekjur frá launamönnum til útflutningsatvinnuveganna og þær þannig skertar. Því vil ég að lokum leggja á það ríka áherslu að að mínu mati og ríkisstjórnarinnar verða fleiri aðilar að bera þær byrðar. Það er fyrst og fremst fjármagnskostnaðurinn sem mjög hefur verið rætt um í þessu sambandi. T.d. ef gengið er fellt um 10% þýðir það að höfuðstóll lánskjaratryggðra lána hækkar um 3,5% eða, þar sem lánskjaratryggð lán eru talin vera að stofni til um 170 milljarðar, um 6 milljarða kr., þ.e. skuldirnar hækka um 6 milljarða kr. Þetta mundi að sjálfsögðu einnig þýða misgengi milli launa og fjármagnskostnaðar sem gæti orðið einhvers staðar af stærðargráðunni 20%. Ég veit að engir hv. þingmenn vilja stofna til þess og því hefur þessi ríkisstjórn talið það eitt meginviðfangsefnið að ná vöxtunum og fjármagnskostnaðinum niður. Ég hika ekkert við að segja og taka t.d. undir það sem formaður Félags ísl. iðnrekenda segir að það sé kominn tími til að fjármagnseigendur greiði eitthvað af hagnaði sínum undanfarin ár til baka. Þetta er djúpt tekið í árinni hjá þeim manni en ég held að afar mikið sé satt í þessum orðum. Og hvernig verður það gert? Ég neita því ekki að mér hefur þótt baráttan við þá sem fjármagnið annast ansi erfið. Þar virðist ekki mega hrófla við neinum hlut. Ég tel það óviðeigandi og þeir sem hafa talið þessa gengisfellingu of litla mættu gjarnan segja mér hvernig við hefðum getað dregið úr þessum áhrifum með lánskjaravísitöluna í fullu sambandi. Ég held að það sé afar stórt mál. Sumir lögfræðingar, ekki þó allir, vilja efast um að fært sé að taka áhrif gengisfellingar út úr lánskjaravísitölu, þ.e. þessi 3,5% niður í 10% gengisfellingu. Sumir segja að það muni vera hægt, aðrir ekki. Það mál liggur alls ekki nægilega ljóst
fyrir.
Af því að menn hafa sagt hér að vextir hafi ekki lækkað mikið þá vil ég andmæla því því það hefur komið fram mjög í greiðsluflæði fyrirtækja. Ég upplýsti það í umræðu fyrir jólin út frá útreikningum fyrir eitt fyrirtæki, Kaupfélag Skagfirðinga, að þar hefðu sparast 100 millj. kr. nettó ef nafnvextir og raunvextir hefðu verið á árinu eins og þeir voru orðnir í lok ársins. Hitt er alveg rétt að raunvextir þurfa að lækka meira. Seðlabankinn telur að raunvextir séu nú orðnir svipaðir og þeir eru í nágrannalöndunum og hann hafi ekki heimild til að knýja þá meira niður. Ég get lýst þeirri skoðun minni að ég tel að til eigi að vera ákvæði sem heimilar Seðlabankanum að grípa inn í vaxtahæð án tillits til þess hver hún er í nágrannalöndum okkar. Ég tel að sveiflurnar í okkar þjóðfélagi séu svo miklar að brýn þörf sé á því og kannski gæti það orðið liður í þeirri endurskoðun á seðlabankalögum sem hæstv. utanrrh. hefur hvað ákveðnast mælt með og hv. 1. þm. Suðurl. talaði lítillega um hér áðan.
Ég spyr: Er ekki hægt að koma vöxtum niður í eitthvað svipað og þeir voru árið 1986? Þá voru raunvextir hér. Þá jukust innlán og þá voru útlánsvextir í kringum 5%. Það væri mikið skref ef það næðist og að þessu er ötullega unnið og leitað er eftir því að það megi gerast, bæði með samráði og samstarfi við Seðlabanka og viðskiptabanka og með því að ná miklu betri tökum á gráa markaðinum, sem svo er stundum kallaður, heldur en hingað til hefur verið. Að þessu stefna að sjálfsögðu þau frv. sem hæstv. viðskrh. hefur lagt fyrir. Ég vil því leyfa mér að halda því fram að með lækkun vaxta, starfsemi Atvinnutryggingarsjóðs o.fl. hafi þegar töluvert áunnist en vil líka halda því fram að með þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir sé ljóst að það þurfi að grípa til ýmissa aðgerða sem mönnum hafi ekki verið eins ljósar áður og ég vona sannarlega að ríkisstjórn, stjórnarandstaða og aðilar vinnumarkaðarins geti sameiginlega unnið að því að finna lausn á þeim málum.