Frestun á fundum Alþingis
Föstudaginn 06. janúar 1989

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
    ,,Forseti Íslands gerir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 111. löggjafarþings, frá 6. janúar 1989 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 6. febrúar 1989.
Gjört í Reykjavík, 5. janúar 1989.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``
    Samkvæmt þessu bréfi og því umboði sem mér er með því veitt lýsi ég því hér með yfir að fundum þessa Alþingis, 111. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag. Þingið verður kvatt til fundar eigi síðar en 6. febr. nk.