Endurunninn pappír
Fimmtudaginn 16. febrúar 1989

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Séð úr sæti mínu var þessi pappír sem hv. fyrirspyrjandi sýndi hér ólíkt fallegri en sá sem ég fékk á mitt skrifborð og er ágætt að taka við prufum. Það stuðlar eflaust að framgangi þessa ágæta máls.
    Ég kvaddi mér hljóðs m.a. til að upplýsa að stjórnvöld hafa þegar beint þeim tilmælum til fulltrúa Norðurlandanna --- ég verð að leggja áherslu á það --- fulltrúa Norðurlandanna hjá Alþjóðabankanum að þeir beiti sér gegn lánveitingu í þessa --- ég vil taka undir með hv. fyrirspyrjanda --- afar óskynsamlegu framkvæmd og þarf ég ekki að fara fleiri orðum um það. Ég vil hins vegar að það komi fram að sá maður er fulltrúi Norðurlandanna allra þannig að hann hlýðir ekki fyrirmælum héðan að þessu leyti þó að hann taki eflaust tillit til þeirra.
    Út af sofandahætti stjórnvalda, þá má það kannski til sanns vegar færa, en þó er það nú staðreynd, eins og ég gat um áðan, að það er núna verið að vinna mjög ötullega að endurvinnslumálum. Það er gert á vegum iðnrn. og hafa bæði nefndarálit og álit ráðuneytisins sjálfs þegar verið unnin og ég á von á því að þau komi til ríkisstjórnarinnar mjög fljótlega. Ég tel því að það sé að verða veruleg straumbreyting í þessum málum einmitt núna. Það er rétt sem hv. þm. sagði að þau fyrirtæki sem hafa ætlað í endurvinnslu á pappír hafa átt í erfiðleikum. Horfið hefur verið að því ráði að þjappa pappír saman og senda til annarra landa eða brenna sem er náttúrlega ekki góður kostur. Þó að orka fáist einhver, þá er hún lítil. En mér er þó tjáð að ef næst í gegn t.d. að aðgreina sorp hér á Reykjavíkursvæðinu, eins og um er talað, muni það stuðla mjög að því að endurvinnsla á pappír geti orðið hagkvæm, það sé mjög stórt mál. Það kostar hins vegar líklega þrefalda sorphreinsun, ef má kalla það svo. Það þarf að greina þetta í þrennt og það er meiri háttar mál, því miður.
    En sem sagt, ég vil fullvissa hv. fyrirspyrjanda um að það er ekki sofandaháttur nú í þessum málum. Unnið er ötullega að þeim og ég efa ekki að fyrirspurn og ábendingar hv. fyrirspyrjanda stuðla að því að enn verði tekið fastar á þessum málum.