Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Það er raunar rétt sem hv. fyrirspyrjandi sjálfur sagði þegar hann skýrði þetta ákvæði. Hér er um að ræða staðfestingu á bráðabirgðalögum sem fyrri ríkisstjórn setti 20. maí ef ég man rétt og það er rétt að í meðferð þeirra hefur gildisákvæðum verið breytt og ákveðnir gildistökudagar settir, en hins vegar þó ekki í sambandi við 5., 8. og 9. gr. Sérstaklega eru það 8. og 9. gr. 8. gr. gerir óheimilt að verðtryggja fjárskuldbindingar sem eru til skemmri tíma en tveggja ára og 9. gr. heimilar Seðlabankanum að setja kaupskyldu á verðbréfasjóði. Það er rétt að fyrir þinginu liggur frv. þar sem þessi ákvæði eru tekin inn í viðkomandi lög, en ég lít ekki svo á að öruggt sé að það frv. verði að lögum fyrir 1. mars og því hefur ríkisstjórnin talið eðlilegt að halda þessu ákvæði með 10. apríl.