Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegur forseti. Vegna spurninga hv. þm. vil ég upplýsa að ég kom beint á þennan fund af fundi með forsetum þingsins og formönnum þingflokka. Þar gerði ég grein fyrir því að ríkisstjórnin vildi hafa samráð um það hvaða mál yrðu afgreidd miklu frekar en að vera að setja upp einhverja úrslitakosti um afgreiðslu mála. Þar var allt í hinu besta bróðerni og ákveðið að ræða aftur um þetta nk. mánudag og það mun verða gert.