Stimpilgjald
Þriðjudaginn 17. október 1989


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Vegna orða hv. síðasta ræðumanns vil ég geta þess að samkvæmt skjátöflu þeirri sem fyrir framan mig er er ljóst að hvorki er í húsi hæstv. forsrh. né hæstv. fjmrh., en ég mun gera ráðstafanir til þess að þeir svari á fundi hv. deildar á morgun þeim spurningum sem hér hafa verið bornar fram og verður þar með ekki lokið umræðu þessa máls á þessum fundi.