Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 22. nóvember 1989


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Vegna ummæla tveggja síðustu hv. ræðumanna vill forseti taka það fram að á þriðjudag hafði verið fyrirhugað að hafa hér í deildinni umræður um umhverfismál og að því hafði verið stefnt að reyna að ljúka þeirri umræðu á þriðjudag. Eins liggur fyrir að hv. deild verður að taka fyrir lánsfjárlög sem nú hafa verið afgreidd frá hv. Ed. Forseti mun hins vegar skoða það fram á þriðjudag hvort hann getur tekið þessa umræðu upp á nýjan leik á þriðjudag og mun hafa um það samráð við formenn þingflokka.