Fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Miðvikudaginn 07. mars 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti vill taka fram vegna orða síðasta ræðumanns að ástæðan fyrir því að frv. um ábyrgðadeild fiskeldislána var ekki tekið fyrir á fundi í gær var einfaldlega sú að hæstv. fjmrh. var fjarverandi og hann ku hafa ýmislegt um málið að segja. Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs um þingsköp og verður nú fram haldið dagskrá.