Ábyrgðadeild fiskeldislána
Þriðjudaginn 13. mars 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseta láðist að geta þess áðan, þegar hann gerði grein fyrir atkvæðagreiðslu sem fram fer kl. 2 á morgun, að vegna þingskapaumræðu sem hv. 6. þm. Norðurl. e. hóf hér í upphafi fundar hefur forseti gert ráðstafanir til þess, vegna þess að hv. þm. þarf að vera fjarverandi við atkvæðagreiðsluna á morgun, að annar gangi út á móti honum og mun forseti sjálfur gera það ef ekki vill betur. Þetta vill forseti að komi fram. ( SV: Ég þakka fyrir.)