Almenningsbókasöfn
Þriðjudaginn 10. apríl 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti þakkar traustið og hann mun leggja til að þetta mál fari til hv. menntmn.
    Hér hefur hv. 16. þm. Reykv. í raun mælt fyrir tveimur frumvörpum sem eru samhliða hér á dagskrá, þ.e. 11. dagskrármálinu, almenningsbókasöfn, sem er 437. mál Nd. og 12. dagskrármálinu sem er Launasjóður rithöfunda og er 438. mál Nd. Engu að síður mun forseti taka 12. málið á dagskrá svo allra formsatriða sé gætt til fullnustu, en umræðunni um 11. dagskrármálið, almenningsbókasöfn, er lokið þar eð ekki hafa fleiri kvatt sér hljóðs en atkvæðagreiðslu er frestað.