Yfirstjórn umhverfismála
Miðvikudaginn 02. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Þessari þingskapaumræðu er lokið. Vegna fyrri hluta þingskapaumræðunnar sem fjallaði um 1. dagskrármálið, yfirstjórn umhverfismála, lítur forseti svo til að forsrh. hafi með orðum sínum gert stjórnarandstöðunni tilboð um sáttaumleitanir í þessu máli. Tveir af fulltrúum stjórnarandstöðunnar, sem hér hafa talað, hafa lýst yfir vilja sínum til að taka þátt í þeim sáttaumleitunum. Forseti sér þess vegna ekki ástæðu til þess að halda umræðunni um 1. dagskrármálið áfram og er henni hér með frestað.