Fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Laugardaginn 05. maí 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Nú biður forseti hv. þingdeildarmenn að gæta þess að forsetar hafa í huga sínum stefnt að því að þinghaldi geti lokið í dag einhvern tíma á sjöunda tímanum. Þær umræður sem hér hafa farið fram að undanförnu eru að mati forseta ekki verulega efnislegar umræður og hann biður nú hv. þingdeildarmenn að skera niður og skammta smátt í þeim umræðum sem eftir eru.