Ferill 23. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


117. löggjafarþing 1993–1994.
Nr. 25/117.

Þskj. 1252  —  23. mál.


Þingsályktun

um flutning tónlistar og leikhúsverka í sjónvarpi.


    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að leita leiða til að stuðla að því að leikhúsverk og tónlistarflutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands og aðrir merkir tónlistarviðburðir skili sér betur til sjónvarpsáhorfenda en verið hefur.

Samþykkt á Alþingi 6. maí 1994.