Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 207 . mál.


352. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund Húnboga Þorsteinsson skrifstofustjóra og Inga Val Jóhannesson deildarstjóra frá félagsmálaráðuneytinu. Þá komu til fundar við nefndina Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður og Þórður Skúlason framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Svanfríður Jónasdóttir sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu. Pétur H. Blöndal og Kristján Pálsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 13. des. 1995.



Kristín Ástgeirsdóttir,

Drífa Sigfúsdóttir.

Einar K. Guðfinnsson.


form., frsm.



Rannveig Guðmundsdóttir.

Arnbjörg Sveinsdóttir.

Magnús Stefánsson.



Bryndís Hlöðversdóttir.