Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 346 — 303. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um lausráðna starfsmenn varnarliðsins.
Frá Árna R. Árnasyni.
1. Hve margir starfsmenn varnarliðsins eru lausráðnir, hve hátt hlutfall eru þeir af heildarstarfsmannafjölda þess og hve lengi hafa þeir verið lausráðnir?
2. Hver er staða þeirra þegar kemur til fastráðningar?
3. Hver er staða þeirra sem hafa verið lausráðnir,
a. um skamma hríð,
b. lengur en þrjá mánuði,
c. lengur en eitt ár,
þegar kemur til fækkunar starfa eða annarra breytinga á starfsmannafjölda?
4. Hver er réttarstaða þeirra varðandi veikinda- og slysatryggingar, orlof, eingreiðslur vinnuveitenda, lífeyrisrétt, atvinnuleysisbætur og önnur vinnutengd réttindi?