Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 353  —  290 . mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um breytingar á reglugerð um jöfnun námskostnaðar.

Frá Drífu Snædal.



     1.      Er fyrirhugað að breyta reglugerð um jöfnun námskostnaðar til að betur sé hægt að sinna því hlutverki að jafna aðstöðumun nemenda af landsbyggðinni, hvaðan sem þeir koma eða hvaða nám sem þeir ætla sér að stunda?
     2.      Er fyrirhugað að breyta reglugerðinni þannig að námsstyrkur komi til frádráttar við ákvörðun námslána?