Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 385. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 515 — 385. mál.
til fjármálaráðherra um skattgreiðslur í tengslum við byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
1. Hvernig er háttað skattlagningu launa erlendra starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun, sundurliðað eftir því hvort um starfsmenn samningsverktaka eða undirverktaka er að ræða, hvort viðkomandi starfsmenn eru ráðnir af verktakanum sjálfum eða starfsmannaleigum, svo og eftir því hvort um fastráðningu eða verkefnaráðningu til skamms tíma er að ræða og öðru sem máli skiptir í þessu sambandi?
2. Hverjum ber í mismunandi tilvikum að standa skil á staðgreiðslu opinberra gjalda af erlendum starfsmönnum við Kárahnjúkavirkjun sem þiggja laun vegna vinnu hér á landi og hvernig er tryggt að greitt sé af raunverulegum heildarlaunum?
3. Hvernig er háttað skattlagningu erlendra verktaka eða lögaðila sem vinna við virkjunina? Í hvaða tilvikum bera þeir fulla eða takmarkaða skattskyldu hér á landi?
4. Hverjar eru skatttekjur ríkis og sveitarfélaga orðnar nú þegar vegna erlendra starfsmanna og erlendra lögaðila, sbr. fyrrgreinda sundurliðun, og hvaða skatttekjur eru áætlaðar af skattskyldum umsvifum erlendra aðila hér á landi á næsta ári?
5. Hver eru helstu álitamál og vandamál sem uppi eru eða upp kunna að koma að mati fjármálaráðuneytisins í sambandi við skattalega meðferð mála í fyrrgreindum tilvikum og tengd umsvifum vegna byggingar Kárahnjúkavirkjunar í heild?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 515 — 385. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um skattgreiðslur í tengslum við byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Frá Steingrími J. Sigfússyni og Jóni Bjarnasyni.