Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 265  —  262. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um hrefnuveiðar.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvaða afurðir féllu til við hrefnuveiðar árin 2003–2006, sundurliðað eftir árum? Óskað er upplýsinga um magn kjöts, rengis o.s.frv.
     2.      Hversu margir hvalir voru veiddir hvert ár?
     3.      Hver hefur kostnaður Hafrannsóknastofnunarinnar verið af veiðunum á hverju ári og hve mikill hluti hans hafa laun til áhafna á hvalveiðibátunum verið?


Skriflegt svar óskast.