Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 295. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1391  —  295. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum um Vísinda- og tækniráð, nr. 2/2003.

(Eftir 2. umr., 17. mars.)



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
     a.      Í stað 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Forsætisráðherra skipar 16 menn í Vísinda- og tækniráð til þriggja ára í senn og jafnmarga til vara. Tveir skulu skipaðir án tilnefningar en 14 samkvæmt tilnefningum eftirtalinna aðila.
     b.      Í stað orðsins „tvo“ í 2. mgr. kemur: fjóra.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Forsætisráðherra skipar tvo menn í Vísinda- og tækniráð frá 1. september 2007 til 31. mars 2009.