Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 211. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 229  —  211. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda frá álverum.

Frá Magnúsi Stefánssyni.



    Hver er áætluð losun gróðurhúsalofttegunda frá álverum, á hvert framleitt tonn af áli, miðað við að raforkan sem notuð er sé framleidd með:
     a.      olíu,
     b.      kolum,
     c.      jarðgasi,
     d.      endurnýjanlegum orkugjöfum, þ.e. jarðvarma annars vegar og vatnsafli hins vegar?


Skriflegt svar óskast.