Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 215. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 233 — 215. mál.
Allsherjarnefnd skilar nú í fyrsta skipti áliti um skýrslu umboðsmanns Alþingis og er það í samræmi við 1. mgr. 23. gr. laga um þingsköp Alþingis eins og henni var breytt síðastliðið vor með lögum nr. 68/2007. Markmiðið með þessu nýmæli er að tryggja betur en áður tengsl embættis umboðsmanns og þingsins sjálfs og undirstrika mikilvægi þess að skýrsla umboðsmanns fái viðeigandi umfjöllun í þeirri fastanefnd þingsins sem um málefni embættisins fjallar.
Allsherjarnefnd hefur fjallað um skýrslu umboðsmanns fyrir árið 2006 á tveimur fundum. Nefndin heimsótti embættið 17. október sl. og gerði umboðsmaður þar grein fyrir meginþáttum starfseminnar og fór yfir helstu atriði skýrslunnar sem lögð var fram á þingi daginn eftir. Þá kom umboðsmaður á fund nefndarinnar og svaraði fyrirspurnum nefndarmanna um einstök atriði. Nefndin telur yfirferð af þessu tagi gagnlega og mikilvæga og leggur áherslu á að þessi samskipti umboðsmanns og nefndarinnar þurfi að auka og móta frekar á næstu þingum.
Á næsta ári verða 20 ár liðin frá stofnun embættis umboðsmanns Alþingis. Nefndin telur óhætt að fullyrða að með því hafi verið stigið verulegt framfaraskref í innleiðingu góðra stjórnsýsluhátta. Hlutverk umboðsmanns hefur frá upphafi verið að hafa, í umboði Alþingis, eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og honum er þannig ætlað að standa vörð um réttindi borgaranna gagnvart stjórnvöldum og stuðla að því að þeir sem með opinbert vald fara gæti jafnan lagareglna og góðra stjórnsýsluhátta í störfum sínum. Ekki er vafamál að störf umboðsmanns og það aðhald sem hann hefur veitt stjórnvöldum á hverjum tíma hefur skilað umtalsverðum árangri í þeim efnum á undanförnum árum.
Skýrslur umboðsmanns gegna mikilvægu hlutverki, enda er þar að finna ítarlega og vandaða umfjöllun um ýmsa þætti stjórnsýsluréttarins. Skýrslurnar – og raunar einstök álit umboðsmanns – eru mikilvæg heimild um túlkun margvíslegra reglna á þessu réttarsviði. Skýrslan fyrir árið 2006 er að vanda greinargóð og fróðleg og þakkar allsherjarnefnd umboðsmanni og starfsmönnum hans fyrir skýrsluna og vel unnin störf á liðnu ári.
Sigurður Kári Kristjánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 233 — 215. mál.
Álit allsherjarnefndar
um skýrslu umboðsmanns Alþingis 2006.

Alþingi, 14. nóv. 2007.
Birgir Ármannsson,
form., frsm.
Ágúst Ólafur Ágústsson.
Atli Gíslason.
Ellert B. Schram.
Siv Friðleifsdóttir.
Ólöf Nordal.
Karl V. Matthíasson.
Jón Magnússon.