Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 469. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 914  —  469. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



1. gr.

    Orðin „hönnuða og eftirlitsaðila sem löggildingu hafa samkvæmt skipulags- og byggingarlögum“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XV í lögunum falla brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. mars 2009.

Greinargerð.


    Í frumvarpinu er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða XV í lögum um virðisaukaskatt. Umrætt bráðabirgðaákvæði var sett með lögum nr. 10/2009 og mælir fyrir um tímabundna heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts m.a. vegna byggingar, endurbóta og viðhalds á íbúðarhúsnæði og frístundahúsnæði.
    Frumvarp til laganna tók miklum breytingum við þinglega meðferð og lagði efnahags- og skattanefnd til að endurgreiðslan tæki jafnframt til virðisaukaskatts sem byggjendur og eigendur íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis greiða af þjónustu vegna hönnunar eða eftirlits með umræddum framkvæmdum.
    Nefndin ákvað að setja sem skilyrði þessarar endurgreiðslu að um væri að ræða þjónustu arkitekta, verkfræðinga og tæknifræðinga en við 3. umræðu var því breytt og talað um þjónustu „hönnuða og eftirlitsaðila sem löggildingu hafa samkvæmt skipulags- og byggingarlögum“.
    Innan nefndarinnar hafa komið fram þau sjónarmið að umrætt skilyrði sé ekki í samræmi við þann raunveruleika sem ýmsar starfsstéttir sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum búa við og að það sé til þess fallið að raska samkeppni þeirra á milli. Nefndin leggur því til að orðalagið falli brott úr ákvæðinu.
    Lagt er til að gildistaka verði 1. mars 2009, til samræmis við lög nr. 10/2009.