Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 471. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 923  —  471. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um flug herflugvéla.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Hver var tilgangurinn með flugi herflugvéla yfir Akureyri helgina 21. og 22. mars sl.?
     2.      Hver var flugleið þessara véla og hversu hátt eða lágt flugu þær yfir Akureyri og annarri byggð?
     3.      Hvaða her tilheyra þessar vélar?
     4.      Hverrar tegundar eru vélarnar og hvaða vopnum eru þær búnar?
     5.      Er flug af þessum toga áætlað í framtíðinni?


Skriflegt svar óskast.