Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 79. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 91  —  79. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um ríkisjarðir.

Frá Birki Jóni Jónssyni.



     1.      Hversu margar jarðir í eigu ríkisins eru nýtanlegar til ábúðar?
     2.      Hversu margar jarðir í eigu ríkisins eru í ábúð?
     3.      Hversu margar jarðir í eigu ríkisins eru lausar til ábúðar og hvaða jarðir eru það?
     4.      Hver er stefna ráðherra varðandi lausar jarðir til ábúðar?


Skriflegt svar óskast.