Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 348. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 895 — 348. mál.
við frv. til l. um rannsóknarnefndir.
1. Við 7. gr.
a. Orðin ,,eða hagsmuni þriðja manns“ í 2. mgr. falli brott.
b. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að takmarka aðgang að gögnum ef þau hafa jafnframt að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra, enda vegi þeir hagsmunir sem mæla með því að upplýsingunum sé haldið leyndum þyngra en hagsmunir þess sem fer fram á aðgang að gögnunum.
2. Við 11. gr.
a. Í stað orðanna ,,um störf rannsóknarnefndar“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: á meðan rannsóknarnefnd er að störfum.
b. 2. mgr. orðist svo:
Þegar rannsóknarnefnd hefur lokið störfum skulu þeir sem rannsókn hefur beinst að njóta réttinda samkvæmt ákvæðum 18.–21. gr. laga nr. 77/2000 og 9. gr. upplýsingalaga, enda hafi ákæruvaldið ekki tekið mál viðkomandi til meðferðar sem sakamál. Fer þá um rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt ákvæðum laga um meðferð slíkra mála. Um réttindi annarra til aðgangs að gögnum rannsóknarnefndar, þar á meðal þeirra sem hafa komið fyrir rannsóknarnefnd, veitt upplýsingar eða rannsóknarnefnd hefur aflað upplýsinga um, fer skv. 4. mgr. 10. gr. að gættum ákvæðum 18. og 21. gr. laga nr. 77/2000.
c. Fyrirsögn á undan greininni orðist svo: Lagatengsl, gildistaka o.fl.
3. Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Allsherjarnefnd fer með verkefni þingnefndarinnar samkvæmt lögum þessum. Skal allsherjarnefnd fjalla um tillögur um skipun rannsóknarnefnda, leggja mat á og gera tillögu til Alþingis um hvenær rétt er að skipa rannsóknarnefnd, svo og eftir atvikum að taka skýrslur slíkrar nefndar til umfjöllunar, gefa þinginu álit sitt um þær og gera tillögur um frekari aðgerðir þingsins.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 895 — 348. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um rannsóknarnefndir.
Frá allsherjarnefnd.