Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 314. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 352  —  314. mál.




Fyrirspurn


til velferðarráðherra um hjúkrunarrými.

Frá Unni Brá Konráðsdóttur.


     1.      Hver er áætluð þörf fyrir hjúkrunarrými á landinu öllu? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum miðað við biðlista annars vegar og hins vegar áætlaða þörf miðað við íbúafjölda og aldurssamsetningu.
     2.      Hvaða áætlanir liggja fyrir um uppbyggingu hjúkrunarrýma á landinu, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
     3.      Hver er fjöldi hjúkrunarrýma á landinu, sundurliðað eftir sveitarfélögum?


Skriflegt svar óskast.