Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 320. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 367  —  320. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um áfengisauglýsingar.

Frá Siv Friðleifsdóttur.


     1.      Hefur auglýsingum á öli, þar sem óverulegur munur er á umbúðum áfengs öls og léttöls, fjölgað á RÚV á síðustu missirum?
     2.      Telur ráðherra að slíkar auglýsingar, sbr. nýlega kvikmyndaauglýsingu sem sýnd var 24. október sl. á RÚV, séu sniðganga á banni við að auglýsa áfengi?
     3.      Telur ráðherra að með tilliti til lýðheilsusjónarmiða geti bann við auglýsingum á áfengi vegið þyngra en ákvæði um tjáningarfrelsi og að slíkt bann brjóti ekki gegn ákvæðum EES-samningsins, sbr. dóm Hæstaréttar frá 14. júní 2007 í máli nr. 599/2006?