Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 276. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 418  —  276. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn Arnbjargar Sveinsdóttur
um fjárveitingar til refa- og minkaveiða.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Mun ráðherra beita sér fyrir því að sveitarfélög fái fjárveitingar til refa- og minkaveiða í fjárlögum 2013?

    Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2013 er gert ráð fyrir 20,2 millj. kr. vegna endurgreiðslna til sveitarfélaga vegna minkaveiða. Ekki eru gerðar tillögur um að ríkið veiti fjármuni af fjárlögum ársins 2013 vegna endurgreiðslna til sveitarfélaga vegna refaveiða.
    Frumvarp til fjárlaga er til umfjöllunar hjá Alþingi og ákvarðanir um breytingar á tillögunum þar af leiðandi í höndum þingmanna.