Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 72. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 575  —  72. mál.




Svar



atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar
um niðurfærslu lána til almennings.


     1.      Hversu mikið hafa lán til heimila verið færð niður frá haustdögum 2008 vegna:
              a.      svokallaðrar 110% leiðar,
              b.      sértækrar skuldaaðlögunar,
              c.      endurútreiknings erlendra fasteignalána,
              d.      endurútreiknings bílalána?

Niðurfærsla lána til heimila Upphæð ma.kr.
a. 110% leiðin 46,0
b. Sértæk skuldaaðlögun 7,3
c. Endurútreikningur erlendra fasteignalána 109,6
d. Endurútreikningur bílalána 38,6

    Þessar upplýsingar um niðurfærslu lána til heimila eru ekki tæmandi. Sem dæmi má nefna að niðurfærsla lána vegna greiðsluaðlögunar og tveggja íbúða úrræðisins er ekki inni í þessum tölum. Þá er eftir að koma í ljós hver endanleg fjárhæð verður þegar búið er að endurútreikna gengistryggðu lánin vegna nýlegra dóma Hæstaréttar, nú síðast hinn 18. október sl.

     2.      Hversu hárri upphæð nemur þessi niðurfærsla hjá:
              a.      Landsbanka Íslands,
              b.      Arion banka,
              c.      Íslandsbanka,
              d.      Íbúðalánasjóði,
              e.      lífeyrissjóðunum,
              f.      ríkissjóði og öðrum opinberum aðilum,
              g.      öðrum fjármálastofnunum?


110% leiðin
ma.kr.
Sértæk skuldaaðlögun
ma.kr.
Endurútreikningur fasteignalána
ma.kr.
Endurútreikningur bílalána
ma.kr.
a.–c., g. Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki,
aðrar fjármálastofnanir*
38,2 6,4 109,6 38,6
d. Íbúðalánasjóður 7,4 0,611 Á ekki við Á ekki við
e. Lífeyrissjóðir 0,461 0,234 Á ekki við Á ekki við
f. Ríkissjóður og
aðrir opinberir aðilar
– – – –
g. Aðrar fjármálastofnanir Fellt undir (a.–c., g.) Fellt undir (a.–c., g.) Fellt undir
(a.–c., g.)
Fellt undir (a.–c., g.)

*    Tölurnar undir a – c-lið og g-lið sýna stöðuna í janúar 2012 en þær hafa lítið breyst frá þeim tíma samkvæmt upplýsingum frá SFF (Samtökum fjármálafyrirtækja). SFF er ekki heimilt að veita upplýsingar, sundurgreindar eftir bönkum og fjármálastofnunum af samkeppnisástæðum. Heildarniðurfærsla lána til heimila hjá fjármálastofnunum, án þriggja stærstu bankanna, nemur um 44 ma.kr. Tölur frá lífeyrissjóðunum og Íbúðalánasjóði sýna stöðuna eins og hún var hinn 1. nóvember sl.