Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 514. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 692  —  514. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um IPA-styrki.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hvert var mótframlag íslenska ríkisins í íslenskum krónum vegna IPA-styrkja frá því að umsókn um aðild að Evrópusambandinu var send inn og fram til 1. desember 2012?
     2.      Hvert er áætlað mótframlag íslenska ríkisins frá 1. desember 2012 og þar til móttöku IPA-styrkja lýkur?


Skriflegt svar óskast.