Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 604. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Prentað upp.

Þingskjal 1027  —  604. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar



um Alexandersflugvöll á Sauðárkróki sem varaflugvöll fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll og Akureyrarflugvöll.


Flm.: Gunnar Bragi Sveinsson, Ásmundur Einar Daðason, Ólína Þorvarðardóttir,
Einar K. Guðfinnsson, Jón Bjarnason, Ásbjörn Óttarsson.


    Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að láta kanna kosti þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll og Akureyrarflugvöll. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður könnunarinnar eigi síðar en í september 2013.

Greinargerð.

    Í þingsályktunartillögu þessari er því beint til innanríkisráðherra að hann láti taka út kosti þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll og Akureyrarflugvöll. Öryggi samgangna þarf að tryggja með sem bestum hætti hvort sem um er að ræða samgöngur á jörðu, sjó eða í lofti. Í dag eru fjórir meginflugvellir á Íslandi, Reykjavíkurflugvöllur, Keflavíkurflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur og Akureyrarflugvöllur. Þessir flugvellir gegna allir mikilvægu hlutverki í samgöngum innan lands og milli landa sem farþega- og vöruflutningavellir og sem öryggistæki.
    Vegalengdir milli þessara valla eru nokkrar en styst er á milli Reykjavíkurflugvallar og Keflavíkurflugvallar, um 50 km. Milli Akureyrar og Reykjavíkur eru um 390 km, milli Reykjavíkur og Egilsstaða um 650 km og milli Akureyrar og Egilsstaða um 265 km. Af þessu má sjá að vegalengdin milli Reykjavíkur og Egilsstaða er allnokkur og sýndi það sig berlega að verulegt óhagræði var að því þegar gaus í Eyjafjallajökli að á Egilsstöðum var eini flugvöllurinn sem nýttist en mikilvægi hans sannaðist að sama skapi.
    Milli Sauðárkróks og Akureyrar er vegalengdin um 120 km, sem tekur einungis rúma 1 og ½ klst. að aka. Milli Sauðárkróks og Reykjavíkur eru í kringum 295 km, sem eru rúmar 3 klst. í akstri. Íbúar höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja búa við það að í næsta nágrenni eru virk eldfjallasvæði eins og Bláfjöll og Krísuvík. Land er að rísa í Krísuvík og jarðskjálftar tíðir á þeim slóðum sem kallar enn og aftur á vangaveltur um stöðu samgangna til og frá höfuðborgarsvæðinu sem og til og frá landinu. Það kann því að vera mikilvægur öryggisþáttur fyrir landsmenn og gesti landsins að öryggi þeirra til samgangna sé tryggt enn frekar.
    Augljóst er að það munar töluvert á vegalengdum og ferðatíma á milli Egilsstaða og Reykjavíkur og Sauðárkróks og Reykjavíkur. Akureyrarflugvöllur er mikilvægur fyrir allt Norðurland, ekki síst vegna aukins farþegaflugs innan lands og til útlanda. Þá gegnir flugvöllurinn lykilhlutverki vegna sjúkraflugs. Verði Alexandersflugvöllur útbúinn sem varaflugvöllur má ætla að það tryggi Akureyrarflugvöll enn frekar í sessi þar sem vegalengd milli vallanna er einungis um 120 km.
    Alexandersflugvöllur er vel staðsettur þar sem aðflug er gott, fjörðurinn víður og lítið um hindranir. Flugvöllurinn vísar í norður/suður, sem eru einnig ríkjandi vindáttir á þeim slóðum, og þá er staðsetning vallarins hagstæð með tilliti til snjóa. Í gögnum frá Vegagerðinni kemur fram að þjóðvegurinn frá Sauðárkróki til Reykjavíkur hefur aðeins verið lokaður í heilan dag um það bil einu sinni á ári undanfarin fjögur ár en á sama tíma hefur þjóðvegurinn frá Egilsstöðum til Reykjavíkur lokast í heilan dag að meðaltali tvisvar sinnum á ári. Vakin er athygli á því að í gögnum Vegagerðarinnar eru aðeins skráðar lokanir ef um er að ræða heilsdagslokanir. Einnig er vakin athygli á því að frá Sauðárkróki til Reykjavíkur og til Akureyrar eru fleiri en ein leið og því er möguleiki á varaleið ef þjóðvegur 1 lokast. Það er því ljóst að staðsetning vallarins er góð sé litið til færðar og samgangna á landi.
    Flutningsmenn telja einsýnt að verulegur ávinningur gæti verið að því að byggja Alexandersflugvöll upp sem varaflugvöll fyrir Reykjavík og Keflavík. Þá er augljóst að slíkur flugvöllur mun þjóna Akureyri vel sem varaflugvöllur og tryggja og treysta þá mikilvægu starfsemi sem þar er rekin í sambandi við ferðaþjónustu og flug almennt. Í ljósi þessa er því beint til ráðherra að ráðast í nauðsynlega undirbúningsvinnu og rannsóknir til að hægt sé að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd og er lagt til að ráðherra að láti kanna kosti þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll og Akureyrarflugvöll. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður þeirrar könnunar eigi síðar en í september 2013.