Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 471. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 817  —  471. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um Hvalfjarðargöng.

Frá Elsu Láru Arnardóttur.


     1.      Hversu margar bifreiðar fara um Hvalfjarðargöng á ári hverju?
     2.      Eru upplýsingar tiltækar um búsetu ökumanna sem keyra um göngin? Ef svo er, hvernig skiptast þeir eftir búsetusvæðum?


Skriflegt svar óskast.