Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 681 — 378. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni
um ávísun kannabiss í lækningaskyni.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað þarf til svo að læknar megi ávísa kannabisi í lækningaskyni á Íslandi? Getur ráðherra eða önnur heilbrigðisyfirvöld gert það heimilt án breytinga á lögum og þá hvernig? Ef lagabreytinga er þörf, hvaða breytingar eru það?
Læknar geta ávísað á lyf sem innhihalda kannabis að því gefnu að lyfið hafi verið heimilað af Lyfjastofnun, þ.e. fengið markaðsleyfi eða verið heimilað með sérstakri undanþágu sem er bundin einstökum lækni og einstökum sjúklingi. Nú þegar er til lyf með markaðsleyfi hér á landi sem inniheldur kannabis en það er lyfið Sativex, sem inniheldur delta-9-tetrahýdrókannabínól (THC) og kannabídíól (CBD) og er munnholsúði sem ætlað er að draga úr einkennum hjá fullorðnum sjúklingum með meðalsvæsna til alvarlega síspennu vegna heila- og mænusiggs. Skráning lyfsins byggist á undanþágu í 2. gr. reglugerðar nr. 233/2001 sem heilbrigðisráðherra veitir og birt er í fylgiskjali I með reglugerðinni.
Ef með spurningunni er átt við hvort læknar geti ávísað á sjálfa kannbis-plöntuna í lækningaskyni er svarið nei en um plöntuna, í heild eða hluta, gilda ákvæði 2. gr., sbr. 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, með síðari breytingum:
„Varsla og meðferð ávana- og fíkniefna, sem talin eru upp í 6. gr. laga þessara, er óheimil á íslensku forráðasvæði samkvæmt því sem nánar segir í 4. mgr.
Ráðherra er heimilt að mæla svo fyrir í reglugerð, að varsla og meðferð annarra ávana- og fíkniefna, sem sérstaklega mikil hætta er talin stafa af samkvæmt alþjóðasamningum, sé á sama hátt óheimil á íslensku forráðasvæði.
Lyfjastofnun getur veitt undanþágu frá ákvæðum 1. og 2. mgr. þegar sérstaklega stendur á. Slíkar undanþágur eru ávallt afturtækar. Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja frekari skilyrði og takmarkanir á veitingu undanþágna og mæla fyrir um önnur atriði er varða framkvæmd þessa ákvæðis.
Innflutningur, útflutningur, sala, kaup, skipti, afhending, móttaka, framleiðsla, tilbúningur og varsla efna, er greinir í 1. og 2. mgr., er bannaður, með þeirri undantekningu, sem getur um í 3. mgr.“
Ekki er talið að ávísun læknis á kannabis í lækningaskyni rúmist innan þeirrar þröngu undanþáguheimildar sem framangreint lagaákvæði hefur að geyma og því er lagabreytinga þörf, eigi læknum að vera heimilt að ávísa á kannabisplöntu í lækningaskyni.