Ferill 379. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 682  —  379. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Egilsdóttur
um aðgerðaáætlun fyrir áfengis- og vímuvarnir.

    
    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvenær er ráðgert að aðgerðaáætlun sem boðuð er í lokaorðum skýrslunnar Stefna í áfengis- og vímuvörnum til ársins 2020 síðan í desember sl. líti dagsins ljós?

    Um þessar mundir er sérstakur starfshópur að leggja lokahönd á gerð stefnu í tóbaksvörnum og má gera ráð fyrir að hún liggi fyrir í upphafi næsta árs. Í ráðuneytinu er nú til skoðunar að tengja gerð þessara tveggja aðgerðaáætlana. Vonir standa til að aðgerðaáætlunin sem boðuð er í lokaorðum skýrslunnar Stefna í áfengis- og vímuvörnum til ársins 2020 líti dagsins ljós á næsta ári.