Ferill 558. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 962  —  558. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um endurhæfingarþjónustu við aldraða.

Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.


     1.      Hvers vegna var samningur við Hrafnistu um rekstur endurhæfingarrýma fyrir aldraða sem búa heima ekki endurnýjaður?
     2.      Stendur til að draga úr þeirri þjónustu til frambúðar?
     3.      Hver er stefna ráðherra varðandi endurhæfingarþjónustu við aldraða sem búa heima?