Ferill 869. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1393  —  869. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.

Flm.: Inga Sæland.


1. gr.

    Eftirfarandi breyting verður á 1. viðauka við lögin: Liður 3.22. orðast svo:
A B C
3.22 Vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira. X
    

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í gildandi lögum falla vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira í flokk B. í 1. viðauka. Af því leiðir að ekki er skylt að framkvæma mat á umhverfisáhrifum við þær framkvæmdir. Framkvæmdir við gerð og rekstur vatnsorkuvera kunna að hafa í för með sér veigamikil áhrif á lífríki og náttúru. Óánægja ríkir með núverandi fyrirkomulag þar sem virkjanir undir 10 MW rafafli hafa hlotið framkvæmdaleyfi án þess að umhverfismat hafi farið fram. Því er lagt til að öll vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira falli undir flokk A í 1. viðauka og verði því ávallt háðar mati á umhverfisáhrifum.