Ferill 681. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1262 — 681. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Hönnu Katrínu Friðriksson um stofnanir sem brotið hafa jafnréttislög.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða stofnanir hafa gerst brotlegar við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, í þeim 25 tilfellum sem nefnd eru í svari ráðherra á þskj. 1101 á yfirstandandi löggjafarþingi og undir hvaða ráðherra heyra þær stjórnarfarslega?
Á þskj. 1101 á yfirstandandi löggjafarþingi svaraði forsætisráðherra fyrirspurn á þskj. 867 þar sem spurt var um brot opinberra aðila en ekki eingöngu stofnana ríkisins og tekur eftirfarandi svar forsætisráðherra því mið af hinu fyrrnefnda. Hvað varðar brot einstakra sveitarfélaga þá heyra þau, eðli málsins samkvæmt, ekki undir einstaka ráðherra og er í þeim tilvikum vísað til þess ráðherra sem ber ábyrgð á málefnum sveitarfélaga samkvæmt núgildandi forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, þ.e. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þá var eitt brot framið af lögaðila sem var að fullu í eigu íslenska ríkisins en hafði stöðu einkaréttarlegs aðila.
Þau 25 tilfelli sem vísað er til í fyrirspurninni varða brot þeirra aðila sem að neðan greinir. Embættisheiti þeirra ráðherra sem fara með málefni viðkomandi aðila, samkvæmt núgildandi verkaskiptingu, er tilgreint samhliða.
1. Nýi Kaupþing banki hf. – fjármála- og efnahagsráðherra (2009).
2. Forsætisráðuneytið – forsætisráðherra (2010).
3. Skjólskógar á Vestfjörðum – umhverfis- og auðlindaráðherra (2011).
4. Akureyrarbær – samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (2011, 2014).
5. Innanríkisráðuneytið – dómsmálaráðherra (2012, 2015).
6. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins – heilbrigðisráðherra (2012).
7. Seðlabanki Íslands – forsætisráðherra (2012, 2015, 2015, 2019).
8. Ríkisútvarpið – mennta- og menningarmálaráðherra (2013).
9. Landspítalinn – heilbrigðisráðherra (2013, 2018).
10. Kópavogsbær – samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (2014).
11. Ríkislögreglustjóri – dómsmálaráðherra (2014).
12. Sýslumaðurinn í Borgarnesi – dómsmálaráðherra (2014).
13. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja – heilbrigðisráðherra (2015).
14. Biskup Íslands – dómsmálaráðherra (2015).
15. Þjóðskjalasafn Íslands – mennta- og menningarmálaráðherra (2016).
16. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu – dómsmálaráðherra (2016).
17. Fjármála- og efnahagsráðuneytið – fjármála- og efnahagsráðherra (2017).
18. Reykjavíkurborg – samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2018).
19. Þingvallanefnd – umhverfis- og auðlindaráðherra (2018).