Ferill 942. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1767 — 942. mál.
Beiðni um skýrslu
frá fjármála- og efnahagsráðherra um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps á fasteignum ríkisins.
Frá Halldóru Mogensen, Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, Andrési Inga Jónssyni,
Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, Birni Leví Gunnarssyni, Helga Hrafni Gunnarssyni,
Ingu Sæland, Jóni Þór Ólafssyni, Smára McCarthy og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps á fasteignum í eigu ríkisins eða sem ríkið hefur leigt og um áhrif þeirra á starfsemi og heilsu starfsfólks. Í skýrslunni komi eftirfarandi fram:
1. Hver hefur kostnaður ríkisins verið á hverju ári undanfarin 10 ár vegna viðgerða, niðurrifs og endurbyggingar húsnæðis í opinberri eigu af völdum leka, rakavandamála, rakaskemmda eða myglu og hvaða kostnaður er fyrirséður í þeim efnum á næstu árum?
2. Hversu margir starfsmenn á vegum hins opinbera hafa undanfarin 10 ár starfað á vinnustöðum þar sem rakaskemmdir og mygla hafa fundist? Hvað er vitað um áhrif á heilsu starfsfólks til lengri og skemmri tíma, um útgjöld heilbrigðiskerfisins og um útgjöld vegna örorku og vinnutaps af þessum sökum?
3. Hvaða útgjöld hafa orðið undanfarin 10 ár vegna röskunar á opinberri þjónustu á heilbrigðisstofnunum og öðrum opinberum stofnunum í kjölfar lokunar og rýmingar vegna rakaskemmda og myglusvepps?
Greinargerð.
Áþekk skýrslubeiðni var lögð fram á 149. löggjafarþingi og var hún umfangsmeiri og beint til forsætisráðherra. Þeirri skýrslubeiðni hefur nú verið skipt í þrennt og beint til þeirra ráðherra sem fara með málefnasvið sem rakaskemmdir í fasteignum og áhrif þeirra falla undir, þ.e. til félags- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra.