Ferill 891. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1903  —  891. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni ráðuneytisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ráðuneytið?
    Lögbundin verkefni ráðuneytisins eru í samræmi við forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 119/2018, sem tók gildi 1. janúar 2019. Breyting á úrskurðinum, nr. 155/2019, tók gildi 31. desember 2019. Málefni ráðuneytisins eru tilgreind í 3. gr. úrskurðarins.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ráðuneytisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?

    Fjárframlög til ráðuneytisins samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 eru 664,5 millj. kr. Hvorki er í lögum um opinber fjármál, gildandi fjárlögum frá Alþingi né í bókhaldi gert ráð fyrir að fjárreiður séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.