Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 469 — 377. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020 (framlenging gildistíma).
Frá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarpið er samið í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020, þess efnis að gildistími ferðagjafar verði framlengdur um fimm mánuði hvað varðar þær ferðagjafir sem ekki hafa þegar verið nýttar eða nýttar til fulls.
Lög um ferðagjöf voru lögð fram á 150. löggjafarþingi og tóku gildi 23. júní 2020. Tildrög laganna mátti rekja til efnahagslegra áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru (SARS-CoV-2) 2020 og aðgerða ríkisstjórnarinnar til að efla efnahagskerfið og draga úr neikvæðum áhrifum á atvinnulífið í kjölfar faraldursins. Í lögunum er meðal annars kveðið á um heimild stjórnvalda til útgáfu ferðagjafar að fjárhæð 5.000 kr. til einstaklinga sem eru fæddir árið 2002 eða fyrr og hafa íslenska kennitölu.
Í gildandi lögum er einstaklingum veitt heimild til að greiða með ferðagjöfinni frá útgáfudegi til og með 31. desember 2020 hjá fyrirtækjum sem eru skilgreind í 2. mgr. 1. gr. laganna.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Tilgangur laga um ferðagjöf er að bregðast tímabundið við neikvæðum áhrifum kórónuveirufaraldursins á starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja hérlendis en vegna víðtækra ferðatakmarkana innan flestra ríkja Evrópu og Norður-Ameríku hafa áhrif faraldursins komið sérlega illa við ferðaþjónustufyrirtæki.
Sem fyrr segir veita gildandi lög stjórnvöldum heimild til útgáfu ferðagjafar til einstaklinga sem eru skilgreindir í 1. mgr. 1. gr. laganna til notkunar hjá fyrirtækjum sem eru skilgreind í 2. mgr. 1. gr. laganna. Um er að ræða einskiptisaðgerð af hálfu ríkisstjórnarinnar og eru ætlaðir fjármunir til ferðagjafar skv. fjáraukalögum fyrir árið 2020, sbr. lög nr. 36/2020, samtals 1,5 milljarðar kr.
Frá gildistöku laganna í júní 2020 til 20. nóvember 2020 hafa um 175 þúsund einstaklingar sótt ferðagjöfina, af um 280 þúsund sem hafa fengið hana útgefna, sem nemur um 875 millj. kr. Af þeim hafa um 125 þúsund einstaklingar þegar nýtt sér ferðagjöfina, sem nemur um 625 millj. kr. Tæplega fimmtíu þúsund ferðagjafir hafa enn ekki verið nýttar, eða sem nemur um 250 millj. kr. Fjöldi fyrirtækja sem hafa tekið þátt í verkefninu eru 826.
Þegar horft er til svæðisbundinnar skiptingar fjármagns má sjá að 195 millj. kr. hafa verið nýttar hjá ferðaþjónustufyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafa um 103 millj. kr. verið nýttar hjá fyrirtækjum á Suðurlandi, 72 millj. kr. á Norðurlandi eystra, 45 millj. kr. á Vesturlandi, 32 millj. kr. á Suðurnesjum, 26 millj. kr. á Austurlandi, 14 millj. kr. á Norðurlandi vestra og loks 13 millj. kr. á Vestfjörðum.
Fjármagnið skiptist nokkuð jafnt á helstu flokka ferðaþjónustufyrirtækja. Sem dæmi má nefna að veitingastaðir hafa fengið samanlagt um 197 millj. kr., gisting um 180 millj. kr. og um 160 millj. kr. hafa runnið til ferðaþjónustufyrirtækja í afþreyingu. Aðrir flokkar ferðaþjónustufyrirtækja hafa fengið lægri fjárhæðir, svo sem bílaleigur og ferðaskrifstofur.
Með lögum um ferðagjöf eru einstaklingar hvattir til að ferðast innanlands. Sem fyrr segir eru ónýttar ferðagjafir um 50 þúsund talsins eða sem nemur um 250 millj. kr. Þetta má vafalaust rekja til þess að á gildistímanum hafa sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda verið hertar, meðal annars með samkomutakmörkunum og lokunum hjá hluta fyrirtækja sem eru skráð til þátttöku. Þá hafa stjórnvöld hvatt einstaklinga til að ferðast ekki að óþörfu. Af því leiðir að tækifæri til nýtingar ferðagjafar hafa verið færri en upphaflega var gert ráð fyrir sem hefur í för með sér að áætlaðir fjármunir hafa til þessa ekki verið fullnýttir. Með því að framlengja gildistímann má nýta þegar ætlað fjármagn til að veita ferðaþjónustufyrirtækjum hérlendis frekari viðspyrnu yfir vetrartímann og fram á vor 2021.
3. Meginefni frumvarpsins.
Í frumvarpi þessu er lögð til breyting á gildistíma ferðagjafar. Lagt er til að gildistími verði framlengdur um fimm mánuði, eða til og með 31. maí 2021, í stað 31. desember, sbr. gildandi ákvæði 5. mgr. 1. gr. laganna.
Með því gefst færi á að styðja enn frekar við ferðaþjónustufyrirtæki um allt land að því gefnu að frekara svigrúm gefist til ferðalaga og mannamóta á næstu mánuðum.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Með orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar frá 13. október sl. var tímabundinn rammi um ríkisaðstoð til stuðnings hagkerfinu vegna yfirstandandi COVID-19-heimsfaraldurs framlengdur til 30. júní 2021.
Frumvarpið felur í sér framlengingu á ríkisaðstoðarkerfi sem þegar hefur verið samþykkt af Eftirlitsstofnun EFTA, þ.e. til og með 31. desember 2020, sbr. gildandi lög um ferðagjöf, nr. 54/2020. Framlenging á gildistíma er einnig tilkynningarskyld til Eftirlitsstofnunar EFTA og háð samþykki stofnunarinnar samkvæmt kafla 3.1 í orðsendingunni um aðstoð í formi beins fjárstuðnings, endurgreiðanlegrar fyrirgreiðslu eða skattaívilnana. Óformlegt samráð var haft við Eftirlitsstofnun EFTA við vinnslu frumvarpsins og tilkynning send stofnuninni 25. nóvember sl. Gerður er fyrirvari um samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA hvað viðkemur lögmætri ríkisaðstoð.
Frumvarpið gefur ekki tilefni til að samræmi við stjórnarskrá sé metið sérstaklega.
5. Samráð.
Vegna stutts fyrirvara við framlengingu úrræðisins og með hliðsjón af aðstæðum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru gafst ekki ráðrúm til hefðbundins samráðs. Aðgerðin er hins vegar ívilnandi fyrir þá sem hún beinist að.
6. Mat á áhrifum.
Verði frumvarpið að lögum mun gildistími ferðagjafar framlengjast um fimm mánuði, eða til og með 31. maí 2021.
Í fjáraukalögum fyrir árið 2020, sbr. lög nr. 36/2020 sem samþykkt voru á Alþingi þann 29. júní 2020, er veitt heimild til að veita allt að 1,5 milljarði kr. til ferðagjafar. Þann 20. nóvember 2020 hafa um 175 þúsund einstaklingar sótt ferðagjöfina, af um 280 þúsund sem fengið hafa ferðagjöfina útgefna, fyrir um 875 millj. kr. Af þeim hafa um 125 þúsund einstaklingar þegar nýtt sér ferðagjöfina, fyrir um 625 millj. kr. Tæplega fimmtíu þúsund ferðagjafir eru enn ónýttar eða sem nemur um 250 millj. kr.
Fjármunir sem hafa verið ætlaðir til ferðagjafar hafa þar af leiðandi ekki verið fullnýttir til þessa. Með framlengingu tímabilsins er einungis átt við ónýttar gjafir og mun framlengingin því rúmast innan þeirra fjárheimilda sem lagt var upp með að veittar yrðu, eða 1,5 milljarðar kr. Af því leiðir að ekki þörf á viðbótarfjármagni. Gangi áformin eftir munu þau ekki hafa fjárhagsáhrif á áætlaðar fjárheimildir.