Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 609  —  377. mál.
2. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020 (framlenging gildistíma).

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.


    1. gr. orðist svo:
    Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr laganna:
     a.      Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
             Viðbótargjöf menningar og lista er stafræn 15.000 kr. inneign útgefin af stjórnvöldum til einstaklinga 12 ára eða eldri með íslenska kennitölu og með skráð lögheimili á Íslandi. Inneign þessi er ekki framseljanleg.
     b.      Við 3. mgr. bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
                  6.      Borgarleikhúsinu, Gaflaraleikhúsinu, Hofi Menningarhúsi, Kómedíuleikhúsinu, Leikhúsi Akureyrar, Tjarnarbíói, Þjóðleikhúsinu og öðrum leikhúsum sem hafa boðið upp á sýningar gegn endurgjaldi á sl. 12 mánuðum.
                  7.      Fyrirtækjum sem hafa boðið upp á sýningu á leiklist, danslist, tónlist, brúðuleik og skyldri liststarfsemi gegn endurgjaldi á sl. 12 mánuðum. Skal inneignin gilda fyrir sýningar á sviði og í beinni útsendingu á internetinu.
     c.      Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2020“ í 5. mgr. kemur: 30. júní 2021.