Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1025, 151. löggjafarþing 465. mál: Lúganósamningurinn um dómsvald og um viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum (útganga Bretlands úr Evrópusambandinu).
Lög nr. 17 18. mars 2021.
Lúganósamningurinn og þær þrjár bókanir sem honum fylgja og hafa lagagildi hér á landi, sbr. 2. gr., gilda um mál sem berast íslenskum dómstólum til meðferðar frá Sameinaða konungsríkinu Stóra-Bretlandi og Norður-Írlandi, enda hafi þau borist fyrir 1. janúar 2021 eða grundvallast á dómi sem kveðinn var þar upp fyrir sama tímamark. Hið sama á við um dómsáttir, opinber skjöl og önnur gögn sem falla undir ákvæði samningsins.
Þingskjal 1025, 151. löggjafarþing 465. mál: Lúganósamningurinn um dómsvald og um viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum (útganga Bretlands úr Evrópusambandinu).
Lög nr. 17 18. mars 2021.
Lög um breytingu á lögum um Lúganósamninginn um dómsvald og um viðurkenningu og fullnustu dóma í einkamálum, nr. 7/2011 (útganga Bretlands úr Evrópusambandinu).
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Lúganósamningurinn og þær þrjár bókanir sem honum fylgja og hafa lagagildi hér á landi, sbr. 2. gr., gilda um mál sem berast íslenskum dómstólum til meðferðar frá Sameinaða konungsríkinu Stóra-Bretlandi og Norður-Írlandi, enda hafi þau borist fyrir 1. janúar 2021 eða grundvallast á dómi sem kveðinn var þar upp fyrir sama tímamark. Hið sama á við um dómsáttir, opinber skjöl og önnur gögn sem falla undir ákvæði samningsins.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 12. mars 2021.