Ferill 671. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1745 — 671. mál.
Skýrsla
fjármála- og efnahagsráðherra um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps á fasteignum ríkisins, samkvæmt beiðni.
Með beiðni á þskj. 1140 frá Halldóru Mogensen og fleiri alþingismönnum er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um tjón af völdum rakaskemmda og myglusvepps á fasteignum ríkisins. Við undirbúning skýrslunnar var haft samband við Ríkiseignir, Landspítalann og Háskóla Íslands og byggja niðurstöður á þeim svörum. Upplýsingarnar frá þessum aðilum ná yfir árin 2015 til 2020.
1. Hver hefur kostnaður ríkisins verið á hverju ári undanfarin 10 ár vegna viðgerða, niðurrifs og endurbyggingar húsnæðis í opinberri eigu af völdum leka, rakavandamála, rakaskemmda eða myglu og hvaða kostnaður er fyrirséður í þeim efnum á næstu árum?
Í meðfylgjandi yfirliti er samantekt yfir verkefni og kostnað tengdum viðgerðum á þeim skemmdum sem urðu vegna leka, rakavandamála, rakaskemmda eða myglu. Alls hefur verið varið um 5,1 ma.kr. í slíkar viðgerðir á tímabilinu 2015-2020 sem skiptist með eftirfarandi hætti:
| Ríkiseignir | 29 eignir | 415.900.000 kr. |
| Landspítali | 61 eign | 4.378.547.418 kr. |
| Háskóli Íslands | 2 eignir | 319.400.000 kr. |
| Samtals: | 5.113.847.418 kr. |
Ekki liggja fyrir upplýsingar um fyrirséðan kostnað á næstu árum.
2. Hversu margir starfsmenn á vegum hins opinbera hafa undanfarin 10 ár starfað á vinnustöðum þar sem rakaskemmdir og mygla hafa fundist? Hvað er vitað um áhrif á heilsu starfsfólks til lengri og skemmri tíma, um útgjöld heilbrigðiskerfisins og um útgjöld vegna örorku og vinnutaps af þessum sökum?
Starfsemi hins opinbera fer fram í fjölmörgum fasteignum víðsvegar um landið. Rakaskemmdir og mygla hafa fundist í fjölda eigna en ekki liggja fyrir heildstæðar upplýsingar um fjölda starfsmanna sem hafa starfað á vinnustöðum þar sem slíkt hefur komið upp eða hver áhrif þess hafa verið á heilsu.
Starfsemi Landspítala er í 100 byggingum á 17 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Flestar byggingar spítalans eru komnar til ára sinna og ástand þeirra hefur verið breytilegt milli ára og rakavandi komið upp í mörgum þeirra á síðustu 10 árum. Á Landspítala hafa starfað 13.101 einstaklingar á síðustu 10 árum, að meðaltali 5.880 starfsmenn á ári, og margir þeirra hafa starfað í byggingum þar sem upp hafa komið rakavandamál. Til trúnaðarlæknis Landspítala leita að meðaltali um 20 starfsmenn á ári vegna einkenna sem þeir telja að geti stafað af rakavanda eða myglu í starfsumhverfi þeirra.
Þegar mygla kom upp í Eirbergi, húsnæði Háskóla Íslands störfuðu um 34 starfsmenn í húsnæðinu. Einhverjir starfsmenn fundu fyrir áhrifum myglusvepps en ekki var skráð hve margir þeir voru. Ekki er vitað hve margir starfsmenn leigutaka voru með starfsstöð þegar mygla kom í Loftskeytastöðinni.
3. Hvaða útgjöld hafa orðið undanfarin 10 ár vegna röskunar á opinberri þjónustu á heilbrigðisstofnunum og öðrum opinberum stofnunum í kjölfar lokunar og rýmingar vegna rakaskemmda og myglusvepps?
Ekki liggja fyrir gögn sem þyrfti til að svara þessari spurningu.
Fylgiskjal.
Viðgerðir vegna rakaskemmda á húsnæði á vegum Ríkiseigna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Viðgerðir vegna rakaskemmda á húsnæði á vegum Landspítalans.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.