Ferill 33. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.

Þingskjal 33  —  33. mál.
Leiðréttur texti.




Tillaga til þingsályktunar


um hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.


Flm.: Bjarni Jónsson, Steinunn Þóra Árnadóttir.


    Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að hlutast til um að gerð verði fjölþætt hagkvæmnisathugun á uppbyggingu þess hlutar stofnvegar nr. 54 sem kallast Skógarstrandarvegur og er á norðanverðu Snæfellsnesi, milli Búðardals og Stykkishólms, sem heilsársvegar. Athugunin taki til samfélagslegra og byggðarlegra áhrifa þess að efla þannig samgöngur á milli byggðarlaga á norðanverðu Snæfellsnesi, um Dali, í Reykhólasveit, sunnanverða Vestfirði og norður á Strandir. Sérstaklega verði litið til styrkingar svæðisins sem eins atvinnu- og þjónustusvæðis, uppbyggingar ferðaþjónustu og vegaöryggis. Ráðherra leggi niðurstöður hagkvæmnisathugunarinnar fyrir Alþingi ásamt kostnaðaráætlun vegna uppbyggingarinnar í síðasta lagi 15. september 2022.

Greinargerð.

    Þessi þingsályktunartillaga var flutt í fyrsta sinn af fyrsta flutningsmanni á 148. löggjafarþingi (169. mál) en varð ekki afgreidd. Hún var enn fremur lögð fram á 150. og 151. löggjafarþingi (259. mál) og var Sigurður Páll Jónsson fyrsti flutningsmaður í bæði skiptin. Þingsályktunartillagan hefur hingað til ekki hlotið afgreiðslu og þar sem ástand Skógarstrandarvegar er enn áþekkt því sem var er hún var fyrst flutt og áætlanir gera ekki ráð fyrir endurbótum í bráð er hún endurflutt nú, óbreytt en með uppfærðri greinargerð, enda má ætla að sú hagkvæmnisathugun sem lögð er til verði til þess að treysta forsendur ákvörðunar um skjótari aðgerðir við uppbyggingu Skógarstrandarvegar en nú eru áformaðar.
    Rannsókn sem gerð var á slysatíðni á vegum á árunum 2007–2010 undir stjórn Þórodds Bjarnasonar leiddi í ljós að Skógarstrandarvegur var einn þriggja hættulegustu vegarkafla landsins. Ekki er ástæða til að ætla að þetta hafi breyst til bóta þar sem fréttir af umferðaróhöppum á þessum vegi eru tíðar enda ástand hans bágborið og ljóst að hann stendur engan veginn undir þeirri umferð sem um hann fer né þjónar hann því hlutverki sínu að mynda greið tengsl milli byggðra bóla þar sem hann liggur.
    Í þingsályktun nr. 41/150 um samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 kemur fram að áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdir á Skógarstrandarvegi á gildistíma áætlunarinnar sé 4 milljarðar kr. Er gert ráð fyrir því að á fyrsta tímabili (2020–2024) fari 100 millj. kr. í framkvæmdir við veginn, 850 millj. kr. á 2. tímabili áætlunarinnar (2025–2029) og á 3. tímabili (2030–2034) 3,1 milljarður kr. Ekki liggur fyrir hvenær áætlað er að verkinu verði lokið en samgönguáætlunin ber það með sér að það verður í það minnsta ekki á næstu 15 árum. Svo löng bið eftir nauðsynlegum úrbótum á veginum er ótæk og mikilvægt að fjármögnun framkvæmdarinnar verði tryggð fyrr.
    Að vonum vöktu hlutaðeigandi sveitarfélög athygli á því í umsögnum sínum til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2020–2034 (435. mál á 150. löggjafarþingi), sem aðgengilegar eru á vef Alþingis, hve afleitt það er að mikilvægur stofnvegur sem Skógarstrandarvegur skuli mæta afgangi við úthlutun fjár til vegaframkvæmda á næstu árum, má þar nefna umsögn Dalabyggðar frá 10. janúar 2020, umsögn Stykkishólmsbæjar 12. desember 2019 og umsögn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi frá 9. janúar 2020. Skal heils hugar tekið undir þessar ábendingar forvígismanna sveitarfélaganna.
    Brýnt er að hrinda áformum um uppbyggingu Skógarstrandarvegar í framkvæmd eins fljótt og nokkur kostur er á svo hann verði ekki lengur slysagildra og fái gegnt samgönguhlutverki sínu. Sporin hræða þegar horft er til staðreynda undanfarinna ára hvað varðar eftirfylgni á samþykktum samgönguáætlunum. Með eflingu samgangna um norðanvert Snæfellsnes og innanverðan Breiðafjörð opnast nýir möguleikar til margvíslegs samstarfs og bættrar þjónustu, svo sem í heilbrigðis- og menntamálum. Eins og staðan er nú þurfa íbúar þessara byggðarlaga sem tengd verða saman með uppbyggðum heilsársvegi um Skógarströnd oftast að ferðast um langan veg til að komast á milli svæða, þótt vissulega sé hægt að komast um illfæran veginn hluta ársins.
    Þessar byggðir eiga sumar hverjar í vök að verjast í atvinnu- og byggðarlegu tilliti. Þegar horft er til aukinnar ferðaþjónustu er svæðið auðugt af fjölbreyttri náttúru, sögu og menningarhefðum sem gætu staðið undir uppbyggingu ferðaþjónustu ef greiðar samgöngur væru fyrir hendi. Þessari þingsályktunartillögu er ætlað að stuðla að því að uppbygging þessa mikilvæga samgöngumannvirkis komist í kring eins fljótt og unnt er. Það gerist ekki síst með því að skoða gaumgæfilega og draga fram hve mikla þýðingu slíkar samgöngubætur munu hafa og draga fram sterkari forsendur fyrir því að hraða uppbyggingu þessara vega.