Ferill 65. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 65  —  65. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 (styrkir og framlög ráðherra).

Flm.: Helga Vala Helgadóttir, Logi Einarsson, Kristrún Mjöll Frostadóttir, Oddný G. Harðardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Jóhann Páll Jóhannsson.


1. gr.

    Við 42. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir heimild skv. 1. mgr. er ráðherra óheimilt að veita tilfallandi styrki og framlög til verkefna sem varða þá málaflokka sem hann ber ábyrgð á átta vikum fyrir auglýstan kjördag til Alþingis.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í aðdraganda lýðræðislegra kosninga er nauðsynlegt að tryggja að jafnræði sé sem mest milli framboða. Sú hætta er fyrir hendi að sitjandi ráðherrar nýti sér forréttindastöðu sína til að afla sér hylli kjósenda hvort tveggja með aðgangi að fjölmiðlum og opinberu fjármagni.
    Í 1. mgr. 42. gr. laga um opinber fjármál er ráðherrum heimilað að veita tilfallandi styrki og framlög til verkefna sem varða þá málaflokka sem þeir bera ábyrgð á. Í aðdraganda alþingiskosninga hefur borið á því að ráðherrar hefji úthlutanir til einstakra mála í stórum stíl allt fram að kjördegi til að vekja athygli á sér og sínu framboði. Telja flutningsmenn það vera ólýðræðislegt að svo sé farið með almannafé og aðstaða sé misnotuð með þessum hætti. Af þeim sökum telja flutningsmenn nauðsynlegt að setja takmarkanir á úthlutun styrkja og framlaga í aðdraganda kosninga þannig að ráðherrum sé óheimilt að veita slíkt fjármagn úr opinberum sjóðum síðar en átta vikum fyrir kjördag. Er þetta gert í þeim tilgangi að ekki megi efast um tilgang fjárveitinga, að gæta jafnræðis milli móttakenda hins opinbera fjármagns úr hendi ráðherra og loks til að takmarka misvægi aðstæðna frambjóðenda til Alþingis.