Ferill 223. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 449  —  223. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um stefnumótunarvinnu og framtíðarsýn um viðbrögð við heimsfaraldrinum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvers vegna hefur afrakstur stefnumótunarvinnu innan ríkisstjórnarinnar um stefnu og framtíðarsýn um viðbrögð við heimsfaraldrinum, sem ráðherra fjallaði um í viðtali 24. júlí 2021, ekki verið kynntur, í ljósi þess að ráðherra sagði í viðtalinu að vinnan tæki tvær til þrjár vikur?
     2.      Hvenær má vænta að stefna ríkisstjórnarinnar um framtíðarsýn hvað varðar viðbrögð við heimsfaraldri verði kynnt?
     3.      Hvaða þættir voru til umfjöllunar og skoðunar af hálfu ríkisstjórnarinnar aðrir en þeir sem ráðherra nefndi í viðtalinu, þ.e. að bólusetningarhlutfall 16 ára og eldri væri um 90% og hvernig ætlunin væri að lifa með COVID í náinni framtíð og mögulega um alla framtíð?


    Vinna ríkisstjórnar sem vísað er til í fyrirspurn var kynnt 24. ágúst 2021, fjórum vikum eftir birtingu viðtals sem vísað er til í 1. tölul. fyrirspurnar. Þegar hafa komið fram upplýsingar og umfjöllun af hálfu forsætisráðuneytis um málið, sem heyrir efnislega undir nokkur ráðuneyti vegna fjölþættrar vinnu og stefnumótunar þvert á ráðuneyti.
    Vísa má til d- og j-liða 1. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar, nr. 6/2022, um hlutverk og verkefni forsætisráðherra og 12. gr. sama úrskurðar um hlutverk og verkefni utanríkisráðherra en ákvæðin eru efnislega óbreytt frá fyrri forsetaúrskurði.