Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 450  —  232. mál.




Frumvarp til laga



um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma.

(Eftir 2. umræðu, 3. febrúar.)


I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.

    Lög þessi gilda um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, hófu starfsemina fyrir 1. desember 2021 og bera ótakmarkaða skattskyldu hér á landi skv. 1. eða 2. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lögin gilda ekki um stofnanir, byggðasamlög eða fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga.

2. gr.
Markmið.

    Markmið laga þessara er að stuðla að því að rekstraraðilar sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli sökum takmarkana á opnunartíma veitingastaða vegna heimsfaraldurs kórónuveiru geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa takmarkananna gætir, varðveitt viðskiptasambönd og tryggt viðbúnað þegar úr rætist.

3. gr.
Orðskýringar.

    Í lögum þessum er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:
     1.      Atvinnurekstur eða sjálfstæð starfsemi: Starfsemi aðila sem greiðir laun skv. 1. eða 2. tölul. 5. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, og er skráður á launagreiðendaskrá eða gerði grein fyrir reiknuðu endurgjaldi í síðasta skattframtali sem hann lagði fram, svo og á virðisaukaskattsskrá.
     2.      Launamaður: Launamaður skv. 1. eða 2. tölul. 4. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987.
     3.      Rekstraraðili: Einstaklingur eða lögaðili sem fellur undir gildissvið laga þessara skv. 1. gr.
     4.      Rekstrarkostnaður: Rekstrarkostnaður skv. 1. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að frátöldum niðurfærslum og fyrningum eigna.
     5.      Stöðugildi: Starfshlutfall sem jafngildir fullu starfi launamanns í einn mánuð.
     6.      Tekjur: Skattskyldar tekjur skv. B-lið 7. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að frátöldum hagnaði af sölu varanlegra rekstrarfjármuna.
     7.      Veitingastaður: Veitingastaður í flokki II eða III skv. 4. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, og staður þar sem selt er áfengi, og eftir atvikum matur, til neyslu á staðnum sem heyrir undir rekstrarleyfi gististaðar í flokki IV skv. 3. gr. sömu laga.

II. KAFLI
Styrkur.
4. gr.
Skilyrði.

    Rekstraraðili sem uppfyllir öll eftirtalin skilyrði á rétt á styrk úr ríkissjóði vegna hvers almanaksmánaðar frá desember 2021 til og með mars 2022:
     1.      Hann starfrækir veitingastað sem fékk rekstrarleyfi samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald fyrir 1. nóvember 2021 og sætti takmörkun á opnunartíma í þeim almanaksmánuði sem umsókn varðar vegna opinberra sóttvarnaráðstafana skv. 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997.
     2.      Tekjur hans af veitingastað eða veitingastöðum sem sættu takmörkun skv. 1. tölul. í þeim almanaksmánuði sem umsókn varðar voru a.m.k. 20% lægri en í sama almanaksmánuði árið 2019 og tekjufallið má rekja til takmörkunar á opnunartíma skv. 1. tölul. Hafi rekstraraðilinn fengið rekstrarleyfi vegna veitingastaðar eftir upphaf sama almanaksmánaðar árið 2019 skal miðað við meðaltekjur hans af veitingastaðnum á jafn mörgum dögum og eru í þeim almanaksmánuði sem umsókn varðar á tímabilinu 1. september til 30. nóvember 2021, eða frá þeim degi sem hann fékk rekstrarleyfi til 30. nóvember 2021 ef hann fékk rekstrarleyfi eftir 31. ágúst 2021. Við sérstakar aðstæður má nota annað tímabil til viðmiðunar sýni rekstraraðili fram á að það gefi betri mynd af tekjufalli hans en viðmiðunartímabil skv. 1. og 2. málsl. Að jafnaði skal þá miðað við tekjur rekstraraðilans af veitingastöðunum í sama almanaksmánuði 2018. Hafi rekstraraðila verið ákvarðaður lokunar-, tekjufalls- eða viðspyrnustyrkur í þeim almanaksmánuði sem umsókn varðar skal hann ekki talinn til tekna í þeim mánuði við útreikning á tekjufalli samkvæmt þessu ákvæði.
     3.      Tekjur hans af veitingastað eða veitingastöðum sem sættu takmörkun skv. 1. tölul. frá 1. janúar 2021 til loka nóvember 2021 voru a.m.k. 2 millj. kr. Hafi veitingastaður fengið rekstrarleyfi eftir 1. janúar 2021 skal umreikna tekjur frá þeim degi sem hann fékk rekstrarleyfi til loka nóvember 2021 í 334 daga viðmiðunartekjur.
     4.      Hann er ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir sem komnar voru á eindaga fyrir 1. ágúst 2021 og álagðir skattar og gjöld byggjast ekki á áætlunum vegna vanskila á skattframtölum og skýrslum, þ.m.t. staðgreiðsluskilagreinum og virðisaukaskattsskýrslum, til Skattsins síðastliðin þrjú ár áður en umsókn barst eða síðan hann hóf starfsemi ef það var síðar. Að auki skal hann, eftir því sem við á og á sama tímabili, hafa staðið skil á ársreikningum samkvæmt lögum um ársreikninga og upplýst um raunverulega eigendur samkvæmt lögum um skráningu raunverulegra eigenda.
     5.      Bú hans hefur ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta. Jafnframt skal hann ekki hafa verið tekinn til slita, nema ef slitin eru liður í samruna, skiptingu eða breytingu á rekstrarformi rekstraraðilans og fyrirhugað er að halda rekstri veitingastaðar eða veitingastaða sem umsókn varðar áfram í lögaðila sem við tekur.

5. gr.
Fjárhæð.

    Fjárhæð styrks skal vera 90% af rekstrarkostnaði rekstraraðila vegna veitingastaðar eða veitingastaða sem sættu takmörkun skv. 1. tölul. 4. gr. þann almanaksmánuð sem umsókn varðar. Styrkur getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur tekjufalli rekstraraðila skv. 2. tölul. 4. gr. í viðkomandi almanaksmánuði. Styrkur fyrir hvern almanaksmánuð getur jafnframt aldrei orðið hærri en:
     a.      500 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðila í mánuðinum hjá veitingastað eða veitingastöðum sem sættu takmörkun skv. 1. tölul. 4. gr. og ekki hærri en 2,5 millj. kr. enda sé tekjufall rekstraraðila skv. 2. tölul. 4. gr. á bilinu 20–60%.
     b.      600 þús. kr. fyrir hvert stöðugildi hjá rekstraraðila í mánuðinum hjá veitingastað eða veitingastöðum sem sættu takmörkun skv. 1. tölul. 4. gr. og ekki hærri en 3 millj. kr. enda sé tekjufall rekstraraðila skv. 2. tölul. 4. gr. meira en 60%.
    Hafi rekstraraðila verið ákvarðaður viðspyrnustyrkur samkvæmt lögum um viðspyrnustyrki vegna þess almanaksmánaðar sem umsókn varðar eða lokunarstyrkur samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru vegna tímabils í sama mánuði og umsókn varðar dregst hann frá styrk samkvæmt lögum þessum.
    Styrkur telst til skattskyldra tekna samkvæmt lögum um tekjuskatt.

6. gr.
Umsókn.

    Umsókn um styrk skal beint til Skattsins fyrir hvern almanaksmánuð og eigi síðar en 30. júní 2022. Umsókn skal vera rafræn en að öðru leyti skal hún vera á því formi sem Skatturinn ákveður og henni skulu fylgja þau gögn sem Skatturinn áskilur.
    Rekstraraðili skal staðfesta við umsókn að hann uppfylli öll skilyrði 4. gr., að upplýsingar sem hann skilar og liggja til grundvallar ákvörðun fjárhæðar skv. 5. gr. séu réttar og að honum sé kunnugt um að það geti varðað álagi, sektum eða fangelsi að veita rangar eða ófullnægjandi upplýsingar.

7. gr.
Ákvörðun.

    Skatturinn skal afgreiða umsókn svo fljótt sem verða má og ekki síðar en tveimur mánuðum eftir að honum berst fullnægjandi umsókn.
    Við afgreiðslu umsóknar og endurskoðun ákvörðunar um styrk getur Skatturinn farið fram á að rekstraraðili sýni með rökstuðningi og gögnum fram á rétt sinn til styrks.
    Skatturinn skal endurákvarða styrk komi í ljósi að rekstraraðili hafi ekki átt rétt á styrknum eða átt rétt á hærri eða lægri styrk en honum var ákvarðaður.
    Að því leyti sem ekki er á annan veg kveðið á um í lögum þessum gilda ákvæði 94.–97. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, eftir því sem við getur átt um afgreiðslu umsókna og endurákvarðanir Skattsins.

8. gr.
Málskot.

    Stjórnvaldsákvarðanir Skattsins samkvæmt lögum þessum sæta kæru til yfirskattanefndar. Um kærufrest og málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum laga um yfirskattanefnd.

9. gr.
Ofgreiðsla.

    Hafi rekstraraðili fengið styrk umfram það sem hann átti rétt á ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var með vöxtum skv. 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá greiðsludegi. Dráttarvextir skv. 6. gr. sömu laga leggjast á kröfu um endurgreiðslu ef hún er ekki innt af hendi innan mánaðar frá dagsetningu endurákvörðunar Skattsins.
    Hafi rekstraraðili veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar um rekstrarkostnað eða upplýsingagjöf hans hefur að öðru leyti verið svo áfátt að áhrif hafi haft við ákvörðun um styrk skal Skatturinn gera honum að greiða 50% álag á kröfu um endurgreiðslu. Fella skal álagið niður ef rekstraraðili færir rök fyrir því að óviðráðanleg atvik hafi hamlað því að hann veitti réttar upplýsingar eða kæmi leiðréttingu á framfæri við Skattinn. Telji Skatturinn að háttsemi rekstraraðila geti varðað sektum eða fangelsi skal hann ekki gera honum að greiða álag heldur kæra málið til lögreglu.
    Ákvarðanir Skattsins og úrskurðir yfirskattanefndar um endurgreiðslur ofgreiddra styrkja eru aðfararhæfir. Kæra til yfirskattanefndar eða málshöfðun fyrir dómstólum frestar aðför.

III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
10. gr.
Hámarksstuðningur við tengda aðila.

    Heildarfjárhæð stuðnings til tengdra rekstraraðila getur að hámarki numið 330 millj. kr., að meðtöldum stuðningi samkvæmt lögum þessum og lögum um ferðagjöf, lokunarstyrkjum fyrir lokunartímabil eftir 17. september 2020 samkvæmt lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, tekjufallsstyrkjum samkvæmt lögum um tekjufallsstyrki og viðspyrnustyrkjum samkvæmt lögum um viðspyrnustyrki.
    Sé um að ræða fyrirtæki sem töldust í erfiðleikum 31. desember 2019, önnur en lítil fyrirtæki sem ekki hafa hlotið björgunar- eða endurskipulagningaraðstoð, getur heildarfjárhæð styrkja til tengdra rekstraraðila þó að hámarki numið 30 millj. kr. Skal slík aðstoð samrýmast reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1407/2013 frá 18. desember 2013 um beitingu 107. og 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart minniháttaraðstoð eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

11. gr.
Birting upplýsinga.

    Skatturinn skal birta opinberlega upplýsingar um hvaða lögaðilum hefur verið ákvarðaður styrkur samkvæmt lögum þessum. Birta skal upplýsingar um alla styrkþega og fjárhæð styrkja nemi þeir jafnvirði 100 þús. evra eða meira.

12. gr.
Viðurlög.

    Einstaklingur eða lögaðili sem brýtur af ásetningi eða stórfelldu gáleysi gegn lögum þessum, svo sem með því að veita rangar eða ófullnægjandi upplýsingar í umsókn um styrk, skal sæta sektum eða fangelsi allt að sex árum nema brot megi teljast minni háttar.

13. gr.
Reglugerðarheimild.

    Ráðherra getur kveðið nánar á um framkvæmd laga þessara í reglugerð.

14. gr.
Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.